Gerum hlutina almennilega! Óðinn Svan Óðinsson og Geir Kristinn Aðalsteinsson skrifa 30. mars 2026 13:00 Aðstöðumál íþróttafélaga skipta sköpum fyrir öflugt íþróttastarf. Þau skipta líka miklu máli fyrir samfélagið í heild. Svo Akureyri sé aðlaðandi kostur fyrir fjölskyldufólk til að setjast að þarf aðstaða fyrir börn og ungmenni að vera í lagi. Þar gegna íþróttamannvirki lykilhlutverki. Aðstaðan á Akureyri og fjölbreytni í íþróttagreinum er mjög góð og það er styrkur fyrir bæinn okkar. Á síðustu árum, á vakt L-listans, hefur verið unnið markvisst að því að bæta aðstöðu íþróttafélaga í bænum með skýrri sýn og metnaði. Það sést best með því að skoða mannvirki sem reist hafa verið síðustu 15 árin eða svo. Árangurinn blasir við. Uppbygging á svæði Nökkva hefur styrkt aðstöðu til sjósports til muna. Aðstaða Skautafélags Akureyrar hefur verið efld með myndarlegum hætti og skapar nú betri skilyrði fyrir bæði breidd og afreksstarf. Uppbygging greina félagsins hefur orðið svo mikil á undanförnum árum að brýn þörf er á stækkun þess hluta æfingaaðstöðunnar sem fram fer á ís. Þá hefur Bílaklúbbur Akureyrar fengið flotta aðstöðu við Hlíðarfjallsveg. Uppbygging KA-svæðisins er gott dæmi um hvernig á að vinna hlutina. Þar er horft til framtíðar, þarfir félagsins teknar alvarlega og hlutirnir gerðir almennilega. Þá er nýleg inniaðstaða Golfklúbbs Akureyrar að Jaðri mikil lyftistöng fyrir kylfinga og bæinn okkar. Við eigum að halda áfram á þessari braut. Því við eigum líka dæmi um verkefni í fortíðinni sem ekki hafa tekist nægilega vel og það er mikilvægt að læra af þeim. Þar má nefna Bogann sem var reistur árið 2003, án þess að fullnægjandi aðstaða, eins og salernisaðstaða, væri tryggð frá upphafi og síðar þurfti að ráðast í kostnaðarsama upphitun og einangrun á húsinu, enda var húsið líkt og ísskápur. Íþróttahúsið við Síðuskóla var of lítið frá fyrsta degi og þar hefði mátt gera mun betur með örlítilli framsýni. Þá eru Þórsarar enn að bíða eftir þaki á stúkuna við Þórsvöllinn sem átti að vera komið fyrir fyrir meira en áratug. Framundan er næsta stóra verkefni sem er uppbygging á félagssvæði Þórs. Bygging íþróttahúss og félagsaðstöðu með það að markmiði að sameina allar deildir félagsins við Hamar. Það verkefni þarf að vinna af sama metnaði og gert er á svæði KA og með lærdóm fyrri verkefna að leiðarljósi. Einhver sagði að á Íslandi ættu alltaf ein jarðgöng að vera í byggingu á hverjum tíma og það sama ætti að gilda um íþróttamannvirki á Akureyri. Í því samhengi er mikilvægt að hlusta að alvöru á ákall sundfélagsins um bætta aðstöðu. Öflug aðstaða verður ekki til af sjálfu sér og hún kostar peninga. En þeim peningum er að okkar mati vel varið því öflugt íþróttalíf er ein af forsendum þess að samfélag blómstri, að fjölskyldur sjái sér hag í að setjast að og að börn og ungmenni fái tækifæri til að vaxa og dafna. Á þeirri vegferð hefur margt áunnist og nú er mikilvægt að halda áfram og gera þetta almennilega! Óðinn Svan er oddviti og Geir Kristinn er í 7. sæti á lista L-listans á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar