Norðmaður tryggði Írak inn á HM og mætir Noregi í fyrsta leik Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. apríl 2026 23:17 Marko Farji segir það verða skrítið að mæta Noregi. Hector Vivas - FIFA/FIFA via Getty Images Íraki af norskum uppruna var í hlutverki hetjunnar þegar Írak varð síðasta þjóðin til að tryggja sinn á HM í fótbolta. Írakski Norðmaðurinn mun svo mæta Noregi í fyrsta leik á HM.
Staðan var 1-1 í úrslitaleik Íraks og Bólivíu þegar Marko Farji var skipt inn af varamannabekknum. Aðeins tveimur mínútum síðar átti hann svo glæsilegan sprett upp kantinn og gaf boltann fyrir á fyrirliðann Aymen Hussein sem skoraði sigurmarkið. Írak tryggði sig þar með inn á HM í sumar og verður með Noregi, Frakklandi og Senegal í riðli. „Þetta er algjör draumur. Þetta er alveg sturlað, en það verður skrítið að mæta Noregi, ég ólst þar upp,“ sagði Farji við TV2. Farji var áður á mála hjá Stromsgodset í Noregi en er nú leikmaður Venezia á Ítalíu. Hann er fæddur í Grimstad í Noregi en á foreldra frá Írak og spilar fyrir írakska landsliðið. Írak, sem þjálfað er af Ástralanum Graham Arnold, mun snúa aftur á heimsmeistaramótið í fyrsta sinn síðan í Mexíkó 1986. „Ég er svo glaður að við höfum glatt 46 milljónir manna, sérstaklega með það sem er að gerast í Miðausturlöndum um þessar mundir. Ég verð að þakka leikmönnunum. Vinnusiðferðið og írakski baráttuandinn gerðu það að verkum að við unnum þennan leik,“ sagði Graham Arnold eftir leikinn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira