Greindi allt fíaskóið í Grindavík: „Augljóst að hann er ekki að slást við dómarann“ Sindri Sverrisson skrifar 3. apríl 2026 08:00 Davíð Tómas Tómasson er einn allra besti körfuboltadómari landsins og hann gat greint allt havaríið í Grindavík af stakri snilld. Skjáskot/Körfuboltakvöld Eftir allt havaríið í Grindavík í fyrrakvöld, þegar jafnvel lögregla og gæslufólk skarst í leikinn vegna óláta, er ómetanlegt að hafa rapparann og körfuboltadómarann Davíð Tómas Tómasson til að útskýra á methraða hvað í ósköpunum gekk á.
Eftir frækinn sigur Njarðvíkur gegn Grindavík í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta hefur þó aðallega verið ritað og rætt um ólætin undir lok leiks. Upp úr sauð þá á milli leikmanna svo lá við hópslagsmálum og þá ruddust áhorfendur einnig inn að vellinum. Í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Íslnad í gærkvöld fór Davíð ítarlega yfir helstu atvikin og sagði alveg ljóst að dómarar leiksins hefðu ekki komist að réttri niðurstöðu, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Klippa: Körfuboltakvöld - Davíð Tómas greindi lætin í Grindavík Davíð byrjaði á að fara yfir lokaniðurstöðu dómaranna sem hann sagði ekki rétta: „Lokaniðurstaðan er sú að Dwayne Lautier fær dæmda á sig sóknarvillu, síðan er dæmd óíþróttamannsleg villa á Kristófer Breka, Luwane Pipkins og Jordan Semple. Síðan er dæmd brottrekstrarvilla á Dominykas Milka og síðan er þremur mönnum af bekkjum liðanna vikið af velli fyrir að koma inn á leikvöllinn.“ Davíð sagði ljóst að Lautier, sem í raun hóf öll ósköpin með sínu broti, hefði átt skilið óíþróttmannslega villu. Hann var sammála því að Kristófer Breki og Pipkins skyldu hafa fengið óíþróttmannslega villu en vildi sjá Semple fá þyngri refsingu. „Fyrir mér ætti Jordan Semple að vera vikið af velli fyrir ofsafengna hegðun og líka aðeins þyngri hrindingu en það sem var í gangi hjá hinum. Fyrir mitt leyti er eðlismunur á þessum hrindingum.“ Davíð vildi þó ekki ganga eins langt og sumir sem talið hafa Semple ráðast á dómara: „Einhverjir hafa talað um að Jordan Semple sé þarna að ráðast á dómarann. Fyrir mér er það bara þvæla. Það er augljóst að hann er ekki að slást við dómarann. Hann er bara búinn að missa stjórn á hegðun sinni, dómarinn kemur á milli og það þarf bara aðeins að róa hann niður. Það er aldrei hætta á því að hann vaði í dómarann og fyrir mitt leyti á sú umræða ekki heima í þessu umtali öllu.“ Þá velti Davíð fyrir sér hvort að Milka hefði átt að sleppa við brottrekstrarvillu, vegna hegðunar sinnar í garð áhorfenda, í ljósi þess að þeir höfðu brotið sér leið í átt að vellinum. Davíð hefði sjálfur látið Milka sleppa en var hins vegar alveg sammála dómurunum um að víkja af velli þeim þremur sem komu af varamannabekkjum liðanna til að taka þátt í látunum, enda reglurnar um slíkt skýrar. Davíð lauk svo sínu máli á að benda á að allar ákvarðanirnar hefðu í raun átt að núllast út og enginn þar af leiðandi átt að fara á vítalínuna, öfugt við það sem gerðist í leiknum, en yfirferð hans í heild má sjá hér að ofan.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Körfuboltakvöld Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjá meira