Gæti Guardiola tekið við Ítölum? Sindri Sverrisson skrifar 2. apríl 2026 23:16 Antonio Conte og Pep Guardiola eru nefndir sem mögulegir arftakar Gennaro Gattuso, í grein La Gazzetta dello Sport. Blaðið viðurkennir þó að óvíst sé hvort einhver von sé um að fá Guardiola. Getty/Molly Darlington Eftir enn ein vonbrigði Ítalíu í undankeppni HM í fótbolta velta Ítalir nú vöngum yfir því hver sé best til þess fallinn að reisa liðið úr öskustónni. Vinsælasta íþróttablað Ítalíu hefur nú nefnt Pep Guardiola sem óvæntan kost í stöðunni.
Eftir heimsmeistaratitilinn 2006 féllu Ítalir úr leik í riðlakeppninni á HM 2010 og 2014, og hafa svo hreinlega ekki komist inn á HM síðan þá. Undir stjórn Gennaro Gattuso tapaði Ítalía í úrslitaleik HM-umspils gegn Bosníu á þriðjudaginn, eftir vítaspyrnukeppni. Þar með þykir ljóst að dagar Gattuso séu taldir og leit að arftaka hans virðist hreinlega hafin. Max Allegri og þeir Roberto Mancini og Antonio Conte, sem áður hafa stýrt ítalska landsliðinu, eru helst taldir líklegir kostir í stöðunni. Allegri er hins vegar í starfi hjá AC Milan og Conte hjá Napoli en talið er að auðvelt yrði að sækja Mancini frá Al-Sadd. Það segir La Gazzetta dello Sport alla vega en blaðið nefnir einnig möguleikann á að sannfæra Guardiola um að taka við starfinu og gjörbylta mögulega leikaðferð ítalska liðsins. Útlendingur hefur ekki þjálfað Ítalíu síðan Giulio Valcareggi stýrði liðinu í fjórum leikjum á sjöunda áratug síðustu aldar en Guardiola þykir óneitanlega afar fýsilegur kostur. Talið er að hann sé á sínu lokatímabili með Manchester City og að þar með yrði mögulegt að fá hann til starfa í sumar. Guardiola hefur stýrt City frá árinu 2016 með einstökum árangri, eftir að hafa áður rakað inn verðlaunum sem þjálfari Bayern og Barcelona. Hann er ekki ókunnugur Ítalíu enda spilaði hann þar með bæði Brescia og Roma, talar reiprennandi ítölsku og ferðast reglulega til Ítalíu í fríum. Gazzettan segir að ekki séu margir ítalskir kostir í stöðunni og kannski hálftilgangslaust að breyta til núna og láta Gattuso fara, nema að til boða standi toppkostur eins og Guardiola. Hvort það sé gerlegt að landa honum er hins vegar annað mál.
Ítalski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Sjá meira