Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 14:55 Elmar Kári Enesson Cogic og félagar í Aftureldingu eru komnir áfram í bikarnum. Vísir/Diego Afturelding varð í dag annað liðið til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.
B-deildarlið Aftureldingar vann þá 6-1 sigur á D-deildarliði Ýmis á Malbikstöðinni að Varmá. Norðmaðurinn Joacim Holtan er farinn að raða inn mörkum fyrir Mosfellsbúa. Breki Ottósson kom Ými reyndar óvænt yfir á átjándu mínútu en Mosfellingar svöruðu með þremur mörkum á síðustu fimm mínútunum fyrir hálfleik. Mörkin þrjú skoruðu þeir Joacim Holtan, Elmar Kári Enesson Cogic og Óðinn Bjarkason. Joacim Holtan bætti síðan við sínu öðru marki eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en fyrstu tvö mörkin hans lögðu bræðurnir Elmar Kári Enesson Cogic og Enes Þór Enesson Cogic. Holtan átti síðan eftir að innsigla þrennuna sína. Joacim Holtan er 27 ára Norðmaður sem gekk til liðs við Aftureldingu í vetur eftir að hafa spilað með Kongsvinger í norsku B-deildinni. Hinn sautján ára gamli Róbert Agnar Daðason innsiglaði svo sigurinn undir lok leiksins. Fylkir var fyrsta liðið til að komast áfram eftir 2-0 sigur á KFA í gær. Leikur Njarðvíkur og Tindastóls stendur nú yfir en svo verða fimm leikir í 32 liða úrslitunum á morgun, laugardag, tveir á páskadag og fimm á annan í páskum en einn leikur (Vestri-Leiknir R.) fer fram síðar.
Mjólkurbikar karla Afturelding Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira