Albert svarar fyrir sig: Með skýr skilaboð til mannsins sem reif treyju hans Aron Guðmundsson skrifar 5. apríl 2026 07:03 Það varð allt vitlaust inn á vellinum Vísir/Getty Albert Guðmundsson, leikmaður Fiorentina á Ítalíu, sendir ansi skýr skilaboð til Tomás Suslov, leikmanns Verona, sem reif treyju Íslendingsins þegar að upp úr sauð milli liðanna í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.
Bæði Albert og Suslov voru reknir af velli í kjölfar atviksins í leik gærdagsins sem að lauk með 1-0 sigri Fiorentina. Verona fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Fiorentina og fannst leikmönnum liðsins að Albert stæði of nálægt spyrnumönnum Verona. Téður Suslov sem og liðsfélagi hans hjá Verona, Jean-Daniel Akpro mættu til þess að færa Albert aftar en áttu ekki erindi sem erfiði og fóru hlutirnir fljótlega úr böndunum. Treyja Alberts rifnaði meðal annars í látunum. Það var Albert sem fer sigri hrósandi frá leiknum ásamt liðsfélögum sínum og hann sendi létt skot á Suslov á samfélagsmiðlinum Instagram í gær þó svo að hann hafi hvergi minnst á Slóvakann. „Auðveldara hérna,“ skrifar Albert við myndaseríu þar sem sjá má Suslov rífa ansi vel í treyju Íslendingsins og skilur Albert eftir hlekk á verslun Fiorentina þar sem kaupa má treyju liðsins merkta honum. Núna er spurningin sú hvort Suslov nýti sér ekki þann góða afslátt sem er á treyju Íslendingsins þessa stundina en treyjur Fiorentina merktar Alberti eru sem stendur á allt að 39 prósent afslætti.
Ítalski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira