Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 21:30 Vítaspyrna var dæmd á Virgil van Dijk undir lok fyrri hálfleiks í bikarleik Manchester City og Liverpool í gær. getty/Robbie Jay Barratt Fyrirliði Liverpool, Virgil van Dijk, segir að liðið hafi gefist upp í tapinu fyrir Manchester City, 4-0, í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í gær.
Liverpool byrjaði leikinn nokkuð vel en City náði forystunni með marki Erlings Haaland úr vítaspyrnu á 39. mínútu. Vítið var dæmt á Van Dijk fyrir brot á Nico O'Reilly. Eftir fyrsta mark leiksins tóku City-menn völdin og unnu öruggan sigur. „Ég get aðeins beðið stuðningsmennina afsökunar á því sem við sýndum, sérstaklega í seinni hálfleiknum,“ sagði Van Dijk eftir leikinn á Etihad. Liverpool var 2-0 undir í hálfleik en þrátt fyrir það segir Van Dijk að það hafi verið hugur í Englandsmeisturunum. „Þú kemur inn með góðan ásetning, að reyna að minnka muninn í 2-1 sem fyrst til að breyta leiknum. Hið gagnstæða gerðist og það er augljóslega erfitt að koma til baka úr 3-0 stöðu hérna,“ sagði Van Dijk. „Þú átt ekki að gefast upp en það er kannski það sem gerðist. Við brugðumst stuðningsmönnum, okkur sjálfum og stjóranum. Hvernig við spiluðum í seinni hálfleik hlýtur að hafa sært alla. Það særði mig klárlega.“ Eini möguleiki Liverpool á að vinna titil á þessu tímabili er í Meistaradeild Evrópu. Liverpool mætir Paris Saint-Germain á Parc des Princes í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum keppninnar á miðvikudaginn. Seinni leikur Liverpool og PSG fer fram á Anfield þriðjudaginn 14. apríl. Í millitíðinni, næsta laugardag, mætir Liverpool Fulham í ensku úrvalsdeildinni. Rauði herinn er í 5. sæti hennar.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. 4. apríl 2026 13:35 Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira
Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. 4. apríl 2026 13:35