Sjö leikmenn flúðu eftir fyrsta landsleikinn í átta ár Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 16:03 Landslið Eritreu náði sögulegum árangri en í kjölfarið hurfu sjö leikmenn sem eru nú taldir hælisleitendur í Suður-Afríku. Mynd/X Sjö landsliðsmenn Eritreu flúðu eftir landsliðsverkefni liðsins fyrir helgi. Landsliðið hefur ekki verið starfrækt árum saman vegna ótta um flótta leikmanna.
Eritrea vann samanlagðan 4-1 sigur á Eswatini í fyrstu leikjum liðsins í undankeppni Afríkumótsins í 18 ár. Fyrst vann liðið heimaleikinn 2-0, sem fram fór í Marokkó, og fylgdi því eftir með 2-1 sigri í Eswatini síðastliðinn þriðjudag. Síðast tók liðið þátt í undankeppni Afríkumótsins árið 2008 þegar Eritrea féll úr leik fyrir Úganda. Eswatini er smáríki innan Suður-Afríku og samkvæmt afrískum miðlum urðu sjö leikmenn eritreska liðsins eftir þar í landi þegar landsliðsverkefninu lauk. Um var að ræða fyrsta landsleik Eritreu síðan 2020 og þann fyrsta utan landssteinanna síðan 2019. Eritrea er á meðal fátækari ríkja heims og flóttamönnum frá ríkinu fjölgað mikið undanfarin ár. Ítrekað hafa landsliðsmenn í fótbolta nýtt tækifærið þegar leikir eru leiknir erlendis til að flýja land. Slíkt gerðist eftir Austur-Afríkumótið 2007 í Tansaníu og leiki í undankeppni Afríkukeppninnar í Angóla 2007. Tólf leikmenn hurðu eftir Austur-Afríkumótið 2009 og tíu létu sig hverfa eftir leiki við Botsvana í undankeppni HM 2018. Vegna þess hve margir leikmenn hafa orðið að hælisleitendum eftir leiki Eritreu hefur þjóðin ekki tekið þátt í undankeppnum HM eða Afríkukeppninnar frá því í Botsvana, þar til í ár. Þrátt fyrir sögulegan árangur, sem veitir Eritreu sæti í riðlakeppni undankeppninnar fyrir Afríkumótið, reyndist ótti um flótta á rökum reistur og sjö leikmenn sem búsettir eru í heimalandinu horfnir á braut.
Eritrea Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira