Höjlund veikur og Lukaku skammaður en Napoli vann stórleikinn Sindri Sverrisson skrifar 6. apríl 2026 20:57 Matteo Politano sá um að skora sigurmark Napoli í kvöld. Getty Napoli hélt áfram flugi sínu í ítölsku A-deildinni í fótbolta og vann 1-0 sigur gegn AC Milan í kvöld. Þar með komst Napoli upp fyrir Milan í 2. sæti, nú þegar sjö umferðir eru eftir.
Napoli er með 65 stig, sjö stigum á eftir toppliði Inter og nú tveimur á undan AC Milan. Það var varamaðurinn Matteo Politano sem skoraði eina markið í kvöld, á 79. mínútu, eða aðeins fimm mínútum eftir að hann kom inn á. Giovane var fremsti maður Napoli í kvöld eftir að í ljós kom að Daninn Rasmus Höjlund gæti ekki spilað vegna veikinda. Áður var ljóst að Antonio Conte gæti ekki notað Romleu Lukaku, David Neres, Antonio Vergara, Giovanni Di Lorenzo eða Amir Rrahmani. Lukaku varð eftir í Belgíu vegna meiðsla í landsleikjahléinu en þá ákvörðun tók hann án samþykkis forráðamanna Napoli. Giovanni Manna, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, sagði ljóst að Lukaku yrði að taka afleiðingum gjörða sinna þegar hann kæmi til Ítalíu. „Staðan er mjög skýr fyrir mér. Romelu fór til Belgíu í landsliðsverkefni, hann varð fyrir smávægilegum meiðslum og kaus að vera þar áfram til að æfa, gegn því sem við höfðum beðið um. Enginn hefði stöðvað hann í að vinna með læknum sínum, en við hefðum viljað ræða málin í Napólí og það gerðist ekki. Við erum ekki ánægð með það,“ sagði Manna fyrir leikinn í kvöld. „Heiðarleiki, virðing og gildi hópsins eru ofar öllu öðru. Að ræða þetta núna er óþarfi, því Romelu er ekki hér, hann er að vinna í Belgíu, ég held og vona að hann komi aftur eftir viku. Hann veit að þetta mun hafa afleiðingar en við höldum áfram. Giovane spilar í dag og við erum ánægð með það,“ bætti hann við.
Ítalski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira