„Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. apríl 2026 22:14 Gunar Magnússon, þjálfari Hauka. Vísir/Hulda Margrét Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, segir að lokatölurnar úr leik FH og Hauka gefi ekki rétta mynd af leiknum.
Haukar máttu þola sex marka tap er liðið heimsótti FH í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-21. Haukar voru þó með yfirhöndina stærstan hluta leiksins. „Lokaniðurstaðan segir ekkert til um þróun leiksins. Við vorum bara með frumkvæðið í einhverjar 45-50 mínútur,“ sagði Gunnar í leikslok. „Ef þú dregur þetta saman þá eru þetta bara of margir tæknifeilar sóknarlega. Við skorum ekki nema 21 mark. Þetta var of mikið af tæknifeilum, en það jákvæða er að við vorum að skapa okkur helling af færum og skapa okkur færi til að fara vel yfir 30 mörkin í kvöld. Það neikvæða er kannski það að sá sem að vinnur leikinn fyrir þá er í markinu hinum megin og hann ver allt of mikið til að við getum unnið þennan leik.“ Hann segir að vörn og markvarsla FH-inga hafi þó ekki verið eina ástæðan fyrir tapi Hauka. „Vörnin okkar gefur aðeins eftir og Grétar Ari (markvörður Hauka) fer út af meiddur. Hann var búinn að vera sjóðandi heitur. Svo missum við Darra (Aronsson) út úr vörninni og það var skellur á þessum tímapunkti. Við lifðum það ekki nógu vel af.“ „En að sama skapi þá er það bara þarna fram á við sem við þurfum meira. Það eru allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp og leggja meira í púkkið. Það mæðir mikið á Frey (Aronssyni). Við þurfum að fá aðra til að leggja meira í púkkið og eigum þá inni.“ Það sé þó ýmislegt jákvætt í leik Hauka sem liðið getur tekið með sér. „Varnarleikurinn og að við erum að skapa okkur fullt af færum. Það er alveg hægt að horfa á það. Auðvitað væri ég í vandræðum ef við værum ekki að fá þessi færi, en við erum bara að fá hérna færi af línu og horni og hraðaupphlaupum og annað til að vera inni í þessum leik. Nýtingin var bara ekki góð og þetta var of mikið af því góða. Það er bara hluti af leiknum. Maður þarf að setja þessi færi.“ „En við förum bara yfir það og lögum þetta. Svo er líka bara sóknarleikurinn sjálfur sem við þurfum að gera betur í. Við mætum klárir á föstudaginn til að svara fyrir þetta.“ Að lokum var Gunnar með nokkuð einfalda lausn við því hvað Haukaliðið þarf að gera til að jafna metin í einvíginu á föstudaginn. „Við þurfum að skora fleiri mörk. Það segir sig sjálft að 21 mark dugar ekki. Við þurfum að skora fleiri mörk til að vinna þá, það er ljóst,“ sagði Gunnar að lokum.
Olís-deild karla FH Haukar Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Sjá meira