Svartfuglavilla í Ráðhúsinu: Þegar flokkssystkinin klappa hvert öðru á bakið á kostnað útsvarsins og hækkaðra gjalda Davíð Bergmann skrifar 8. apríl 2026 09:00 „Heiða Björg Hilmisdóttir á þetta lof svo sannarlega skilið. Hún er stjórnmálamaður sem hlustar ekki bara með eyrunum, heldur líka með hjartanu,“ skrifaði Valgarður Lyngdal Jónsson, oddviti Samfylkingarinnar á Akranesi, nýverið á Facebook. Það kemur svo sem engum á óvart að hann sjái ástæðu til að dásama varaformann flokksins síns með þessum hætti. Tilefnið var lofgrein Ragnars Erlings Hermannssonar á Mannlífi, „Kæra borgarstýra“, og það verður að segjast eins og er: Þessi lofgrein var svo yfirþyrmandi væmin að hún kallaði fram hálfgerða heilablæðingu hjá hverjum þeim sem býr yfir lágmarks raunveruleikaskyni. Það var hreinlega líkamleg raun að komast í gegnum textann og hrollurinn sem fylgdi þessu pólitíska sykuráti sat í mér langt fram eftir degi. Ef viðhalda á svona mikilli pólitískri slepju og innanhússklappi þarf borgin sennilega að fara að fjárfesta í stærri niðurföllum frekar en fleiri hjólastígum. Meistaraplan um efnahagslega kafsiglingu Undir forystu Samfylkingarinnar í ríkisstjórn virðist vera í gangi markvisst plan við að kafsigla efnahagslífið í landinu öllu. Það krefst jú einstakra hæfileika að rækta verðbólgu og álögur af slíkri kostgæfni að venjulegt fólk fær varla dregið andann á meðan landsstjórnin fagnar „árangrinum“ á beinni leið sinni niður á botninn. Það er nöturlegt að horfa upp á hvernig gjöld og skattar á landsmenn eru hækkuð kerfisbundið til að fjármagna sívaxandi yfirbyggingu og hugmyndafræðileg gæluverkefni, svo ekki sé talað um vopnakaup fyrir annað ríki. En við ættum svo sem ekki að vera hissa; nákvæmlega slíkt hið sama er fyrir löngu búið að gerast hjá borginni; með stjórnlausri óráðsíu og gegndarlausri fjármögnun gæluverkefna á kostnað grunnþjónustu er skuldastaða borgarinnar svimandi há, þökk sé Samfylkingunni sem hefur verið við völd í meira en þrjá áratugi í borginni og hlýtur þar af leiðandi að bera höfuðábyrgð á þessari stöðu. Sögulegt 2% fylgi og „árangur“ í borginni Þessi efnahagslega eyðslustefna étur nú upp pyngju borgarbúa og það endurspeglast í raunveruleikanum: Það er stórmerkilegt afrek hjá sitjandi borgarstjóra að mælast með einungis 2% stuðning í nýlegri könnun. Þegar aðeins tveir af hverjum hundrað borgarbúum vilja sjá hana áfram í embætti þá er ljóst að „hjartað“ sem hún hlustar á er ekki í neinum takti við fólkið. Heiða Björg segir sjálf að markmiðið sé að ná árangri í pólitík en ekki vera vinsæl. Ef árangur er skilgreindur sem algjört rof við kjósendur og efnahagslegur glundroði, þá hefur hún vissulega náð markmiðum sínum. Forræðishyggja í barnaafmælum og skrifstofuveldi Forræðishyggjan í Ráðhúsinu er orðin svo gjörsamlega klikkuð að Mannréttindaskrifstofan gefur nú út tilmæli um hvernig fólk eigi að halda barnaafmæli! Þegar opinbert skrifstofuveldi skiptir sér af boðskortum inni á heimilum fólks er ljóst að mannaflinn þar inni hefur bókstaflega ekkert þarfara að gera. Það er hrein óráðsía að borga hærri skatta svo skrifstofublókin geti leikið siðaprest í einkalífi fólks á sama tíma og innviðir grotna niður. Sjálfbjörg í stað bómullar Á sama tíma og peningum er dælt í afmælistilmæli og kynjapólitík blasir alvarlegur raunveruleiki við: Í lok árs 2022 voru um 3.000 ungmenni á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 16–24 ára hvorki í skóla né vinnu. Í stað þess að eyða mannafla í skrifstofusteypu ætti borgin að leggja allt kapp á að styðja við fjölsmiðjur og verkefni sem kenna sjálfbjargarviðleitni. Það er raunveruleg grunnþjónusta að hjálpa ungu fólki að standa á eigin fótum, en það gerist ekki með bómullarvafningi og meðvirkni, heldur með því að efla þrek þess og getu til að sjá fyrir sér sjálf. Dauðrotaðir skattgreiðendur Við búum í samfélagi þar sem löggjöf um mannréttindi er í fremstu röð á heimsvísu. Við þurfum ekki dýrt borgarbákn til að kenna okkur það sem við þegar kunnum. Það er eitthvað mikið að í kerfi þar sem ungum öryrkjum fjölgar um 13,6% frá aldamótum, á sama tíma og skattfé er dælt í hugmyndafræðilegan hégóma. Það er komið nóg af fórnarlambsmenningu og markvissri aumingjavæðingu fullorðins fólks með takmarkalausa tilætlunarsemi. Vonin um heilbrigða skynsemi Ég ætla rétt að vona að næsti meirihluti í borginni hafi vit á því að forgangsraða með hausnum en ekki bara flokkshagsmunum. Borgin á að sinna skólum, vegum og sorphirðu – hún á ekki að vera félagsmálastofnun fyrir fullorðið fólk sem mætir með kröfur á hendur þeim sem vinna. Ef næsta borgarstjórn ætlar að halda áfram að hækka gjöld til að dæla peningum í bull og bómull munu nöfn þeirra gleymast jafn hratt og þessi „kæra borgarstýra“. Enginn man eftir þeim sem gerðu ekkert af viti nema að eyða peningum vinnandi fólks í vitleysu. Höfundur er unglingaráðgjafi og flokksmaður Miðflokksins á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Davíð Bergmann Mest lesið Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar