Spænsku stórliðin verða ekki með í stemningunni Ágúst Orri Arnarson skrifar 9. apríl 2026 07:00 Real Madrid og Barcelona munu klæðast sínum venjulegum treyjum um helgina. getty Bryddað verður upp á nýjungum með því að klæðast gömlum treyjum í spænska boltanum um helgina. Fjögur lið munu hins vegar ekki vera með í fjörinu, þeirra á meðal stórliðin Real Madrid og Barcelona.
Liðin í tveimur efstu deildum Spánar ætla að klæðast sögufrægum treyjum í leikjum helgarinnar. Svokölluðum „retro“ treyjum sem hafa slegið í gegn hjá bæði fótboltaáhugamönnum og tískuunnendum að undanförnu. Mörg stór félög víðsvegar um Evrópu hafa verið með slíkar treyjur til sölu. Íþróttavörurisar eins og Nike og Adidas hafa líka séð tækifæri í þessari fortíðarþrá fótboltaáhugamanna og endurvakið eldri hannanir. It's about the story.It's their legacy. #LALIGARETRO pic.twitter.com/nAgvj98sc8— LALIGA English (@LaLigaEN) April 8, 2026 Hingað til hafa evrópsku félögin samt ekki spilað sjálf í gömlum treyjum en spænska úrvalsdeildin verður sú fyrsta af fimm bestu deildum Evrópu til að prófa þetta tilraunaverkefni sem gekk vel í áströlsku úrvalsdeildinni. Dómarastéttin ætlar líka að vera með í stemningunni og endurvekja gamla dómarabúninga, þó þeir hafi kannski breyst hvað minnst á síðustu áratugum. Treyjurnar voru frumsýndar á tískuvikunni í Madríd, eins og sjá má í myndskeiðum hér fyrir neðan. Treyjurnar verða svo frumreyndar í leikjunum um helgina. 🤔 ¿Cuál es tu camiseta favorita de #LALIGARetro? #LALIGAFashionNight | #42LEGADOSLALIGA pic.twitter.com/ruRd9mfsC2— LALIGA (@LaLiga) March 19, 2026 👕 Está guapa la camiseta de los árbitros para la jornada RETRO de La Liga.😯Lo de que desfile @darioemehache con ella no lo vio venir nadie.pic.twitter.com/vkqlDsJXjo— Mr. Asubío (@MrAsubio) March 19, 2026 Barcelona, Rayo Vallecano og Getafe munu hins vegar ekki spila í gömlum treyjum um helgina en ýmsar ástæður eru fyrir því og þá helst samningar við styrktaraðila. Real Madrid kaus síðan að taka alfarið engan þátt í þessu tilraunaverkefni.
Spænski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira