Er okkur sama um unga fólkið okkar? Hvar á það að vera? Þorvaldur Daníelsson skrifar 9. apríl 2026 09:02 Það að tilheyra er grunnþörf hvers einstaklings. Ef fólk upplifir að það tilheyri ekki samfélaginu er erfitt að byggja upp sterka sjálfsmynd og heilbrigt samfélag. Reykjavíkurborg hefur lengi viljað líta á sig sem barnvæna og framsækna borg, en þegar kemur að raunverulegu aðgengi ungmenna að öruggum og skapandi rýmum er staðan einfaldlega óásættanleg. Um 18 þúsund ungmenni eru á aldrinum 16–25 ára í Reykjavík, en í dag er einungis eitt ungmennahús rekið fyrir þennan hóp í borginni, Hitt húsið, í Elliðaárdal. Eitt ungmennahús fyrir öll þessi ungmenni er ekki stefna - það er skortur á stefnu! Ójafnt aðgengi eftir hverfum Elliðaárdalur er gífurlega fallegt náttúru- og útivistarsvæði sem Reykvíkingum þykir almennt vænt um að hafa í sínu nærumhverfi. Reykjavíkurborg er þó ekki eitt samræmt hverfi heldur samanstendur hún af fjölbreyttum hverfum sem hvert um sig hefur sinn sjarma og sínar áskoranir. Aðstæður eru ólíkar milli hverfa, sem og samgöngur þeirra á milli. Þetta gerir það að verkum að erfitt er að þjóna öllum ungmennum borgarinnar með einu ungmennahúsi staðsettu í Elliðaárdal. Ungmennahús þarf að vera staðsett þar sem ungt fólk er eða á auðvelt með að sækja. Það er ekki nóg að setja upp ungmennahús til að „haka í boxið.“ Ungmennahús þurfa raunverulega að þjóna sínum markhópi og vera framsækin í að ná til hans. Það er augljóst að slíkt tekst illa ef staðsetningin er almennt langt frá ungmennum, eins og raunin er nú þar sem engar almenningssamgöngur eru í Hitt húsið og staðsetningin úr alfaraleið. Afleiðingarnar eru nokkuð augljósar. Þau sem hafa greiðan aðgang taka meiri þátt í starfi ungmennahúsa, hin sitja eftir. Þannig taka sum ungmenni þátt í þeim fjölmörgu og frábæru viðburðum sem Hitt húsið stendur fyrir, á meðan þau sem standa höllum fæti, til dæmis ungmenni sem eru að flosna upp úr skóla, sækja síður í þjónustuna. Forvarnir Það er mikið talað um mikilvægi forvarna í íslensku samfélagi. Forvarnir virka ekki nema þær séu til staðar þar sem fólk er. Ungmennahús eru eitt áhrifaríkasta forvarnatæki sem til er enda er það staður þar sem ungmenni geta fundið sig tilheyra, þau geta byggt upp sjálfstraust og leitað stuðnings án stimplunar. Þegar slíkt rými er aðeins til staðar á einum stað í borginni er verið að takmarka aðgang ungmenna að starfinu verulega. Pólitísk ábyrgð Þetta er ekki ný umræða. Í tæpa þrjá áratugi, með örstuttum hléum, hefur Samfylkingin farið með lykilábyrgð á stjórn Reykjavíkurborgar. Á þeim tíma hefur verið fullt tækifæri til að byggja upp dreift net ungmennahúsa í hverfum þar sem þörfin er mest. Það hefur ekki gerst. Það er ekki hægt að skýra það með vanþekkingu eða skorti á hugmyndum. Þetta er afleiðing af forgangsröðun. Sú forgangsröðun hefur ekki verið ungmennum í vil. Við vitum að ungmennahús virka. Hitt húsið hefur sýnt að ungmennahús geta haft raunveruleg áhrif. En það undirstrikar líka vandann í sjálfu sér. Af hverju er ekki búið að opna ungmennahús víðar? Tími aðgerða, ekki orða Ef Reykjavík ætlar að vera borg fyrir alla þarf hún að hætta að líta á ungmennahús sem aukaatriði. Þetta eru grunninnviðir samfélagsins. Ungmenni eiga ekki að þurfa að sækja þjónustu yfir hálfa borgina til að fá að vera hluti af samfélagi. Þjónustan þarf að vera á aðgengilegum stað. Á yfirstandandi kjörtímabili höfum við í Framsókn í borgarstjórn Reykjavíkur lagt fram tillögur sem snúa að fjölgun ungmennahúsa auk alls kyns annars til að bæta aðstæður fyrir börn og ungmenni en þeim hefur meira og minna öllum verið hafnað eða svæfðar í nefnd af vinstri flokkunum í meirihluta borgarstjórnar, og þar hefur Samfylkingin farið fremst í flokki. Í ljósi sögunnar kemur þetta kannski ekki á óvart, því Samfylkingin flutti Hitt húsið úr miðborginni í Elliðaárdalinn án þess að hafa einu sinni fyrir því að tryggja strætósamgöngur á staðinn! Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær Reykjavík þarf að stíga næstu skref. Framsókn vill fjölga ungmennahúsum í borginni og byrja á því að opna nýtt ungmennahús í miðborginni með áherslu á skapandi greinar. Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi Framsóknar og skipar 3. sæti á framboðslista flokksins til borgarstjórnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Þorvaldur Daníelsson Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar