Opið bréf til Barna og fjölskyldustofu Steindór Þórarinsson og Jón K. Jacobsen skrifa 9. apríl 2026 09:16 Boð til samtals Við buðum fulltrúum Barna og fjölskyldustofu formlega með tölvupósti 4. apríl að koma í hlaðvarpsþáttinn Týndu Strákarnir og ræða stöðu barna í barnaverndarkerfinu, meðferðarúrræðin sem eru í boði og þá ábyrgð sem fylgir þessum málaflokki. Við ítrekum það boð hér. Þessi umræða á að fara fram opinberlega Þetta snýst ekki um ímynd. Þetta snýst um börn, aðstandendur þeirra og það hvort úrræðin sem eiga að grípa þau séu raunverulega að virka. Undanfarin misseri hafa komið fram mál sem gefa fullt tilefni til opinnar umræðu um meðferðarheimili fyrir börn. Umboðsmaður barna sagði í nóvember að rétt væri að endurskoða starfsemi meðferðarheimila fyrir börn og ungmenni vegna alvarlegra mála sem komið hefðu upp síðustu misseri. Í sömu umfjöllun kom fram að lýsingar frá Bjargey bentu meðal annars til öryggisbresta, faglegs vanhæfis og veikra verkferla. (visir.is) Lækjarbakki kallar líka á skýr svör Í ágúst í fyrra var sagt frá því að gert væri ráð fyrir að meðferðarheimilið Lækjarbakki yrði opnað á ný í Gunnarsholti í lok árs 2025 eða í byrjun 2026 og haft eftir Funa Sigurðssyni að þetta gæti orðið nær bylting. Á sama tíma kom fram að enginn drengur væri þá formlega á biðlista eftir langtímameðferð hjá Lækjarbakka. (MBL.is) Í mars á þessu ári kom svo fram að Lækjarbakki hefði opnað eftir um 700 daga og að uppsafnaður vandi hefði skapast á meðan úrræðið var lokað. Þá var fyrsti skjólstæðingurinn innritaður og greint frá því að pláss væru fyrir sex drengi og kynsegin ungmenni. (MBL.is) Síðar í mars var síðan greint frá því að ekkert barn væri vistað á Lækjarbakka á þeim tíma, að tveir drengir hefðu verið innritaðir og að þeir væru báðir komnir á neyðarvistun Stuðla eftir strok og uppákomu sem kallaði á aðkomu lögreglu. Þarna vakna eðlilegar og málefnalegar spurningar. Hver er raunveruleg staða úrræðisins í dag. Hversu mörg börn eru þar núna. Hver er nýtingin. Og hvað segja þessar sveiflur um stöðu kerfisins í heild. Hver er heildar launakostnaður á mánuði síðan í desember 2025? Gagnreyndar aðferðir þurfa skýra merkingu Í umfjöllun um opnun Lækjarbakka kom fram að starfsfólk hefði fengið yfirgripsmikla þjálfun í aðferðafræði Barna og fjölskyldustofu og að meðferðin byggði á samþættingu gagnreyndra aðferða BOFS og einstaklingsmiðaðrar nálgunar. Það er jákvætt ef svo er. En þá þarf líka að vera skýrt hvað það þýðir í reynd. Hvaða aðferðir eru þetta nákvæmlega. Hvernig eru þær innleiddar. Og hvernig er árangur mældur. Umfjöllunin sem birt var nefnir ekki þessar aðferðir nánar. (visir.is) Þetta er ekki bara fortíð Í síðasta þætti hjá okkur var Rósa Ólöf Ólafsdóttir, systir Lalla Johns, gestur. Þar var rætt um hvernig kerfið brást ekki aðeins honum heldur líka aðstandendum hans. Hún fór yfir gögn og skýrslur um bróður sinn sem hún lýsir þannig að þar megi sjá fordóma, niðurlægingu og valdbeitingu. Kjarni þess þáttar var einfaldur. Þessi mynstur tilheyra ekki bara fortíðinni. Til okkar hafa líka borist frásagnir frá fólki sem hefur verið inni í þessum veruleika, bæði fyrrverandi skjólstæðingum og fólki sem hefur starfað innan kerfisins. Við höfum einnig undir höndum efni sem styður við hluta þeirra frásagna, en birtum það ekki óunnið af tilliti til persónuverndar og stöðu þeirra barna sem þar koma við sögu. Við erum að kalla eftir samtali, ekki upphlaupi Við erum ekki að leita að sviðsettu rifrildi. Við erum ekki að leita að átökum sjálfra þeirra vegna. Við erum að kalla eftir heiðarlegu samtali um stöðuna, úrræðin, eftirlitið, aðferðirnar og ábyrgðina. Þess vegna ítrekum við boð okkar til Barna og fjölskyldustofu. Komið í Týndu Strákana. Ræðum þetta opinberlega. Ræðum hvað er í boði, hvað virkar, hvað virkar ekki og hvað þarf að bæta. Höfundar eru þáttastjórnendur Týndu strákanna: Steindór Þórarinsson, viðurkenndur markþjálfi og Jón K. Jacobsen, fíkniráðgjafi og faðir Geirs Arnars Jacobsen sem lést í brunanum á Stuðlum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar