Maístjörnur verkalýðsins, riddarar hringborðsins eða konungsríki fárra – við viljum von, trú og kærleika Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar 9. apríl 2026 11:17 „Ó hve létt er þitt skóhljóð, ó hve lengi ég beið þín...“ svona byrjar eitt fallegasta ljóð sem við Íslendingar eigum eftir Halldór okkar Laxness. Þessi orð úr Maístjörnunni hafa alltaf snert mig.Þau minna mig á vonina.Vonina sem kviknar þegar eitthvað nýtt er í vændum.Vonina sem lifir jafnvel þegar vindurinn hvín og vorhret er á glugga. Við þekkjum það öll að lifa á tímum þar sem margt er þungt og erfitt.Margir félagsmenn verkalýðsins hafa áhyggjur af launum, afkomu, húsnæði og réttindum sínum.Margir hverjir hafa einnig upplifað að kerfið sé fjarlægt, flókið eða ekki nægilega aðgengilegt fólkinu sjálfu. En rétt eins og í ljóðinu þá trúi ég því að alltaf sé til stjarna sem skín.Fyrir mér á Verkalýðsfélag Suðurlands að vera sú stjarna fyrir félagsmenn sína.Það á að vera afl sem veitir von, styrk og skýra forystu.Félag sem stendur með fólki, hlustar á það og vinnur fyrir það af heilindum. Þess vegna býð ég mig fram til formanns. Ég geri það ekki vegna titils. Enginn getur einn síns liðs komið skipi í höfn.Við erum listi fjölbreytts hóps fólks sem er annt um félagsfólk og þeirra tilfinningu að eiga athvarf í félagi sem er raunverulega þeirra megin. Við viljum félag sem er hlýtt en sterkt.Félag sem talar skýrt.Félag sem er aðgengilegt öllum, sama hvaðan fólk kemur eða hvaða tungumál það talar. Við viljum að verkalýðsfélag eigi ekki aðeins að sinna málum á pappír eða í tölvusamskiptum.Það á að vera rödd þeirra sem mæta á hverjum degi til vinnu og halda samfélaginu gangandi.Það á að vera skjól þegar á reynir og afl sem berst fyrir bættum kjörum og meiri virðingu. Í Maístjörnunni er talað um stjörnu sem skín þrátt fyrir kulda og óveður. Við á B-lista teljum að það sé einmitt það sem við þurfum núna.Skýra sýn.Hlýju.Samstöðu.Og trú á að gott geti orðið betra. Við viljum leggja fram okkar reynslu, kraft og okkar hjarta í það verkefni að byggja upp sterkara, opnara og réttlátara Verkalýðsfélag Suðurlands.Félag sem félagsmenn geta treyst.Félag sem hlustar.Félag sem sameinar. Höfundur er Bergþóra Haralds Eiðsdóttir fyrir hönd B-lista framboðs til stjórnar VLFS. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
„Ó hve létt er þitt skóhljóð, ó hve lengi ég beið þín...“ svona byrjar eitt fallegasta ljóð sem við Íslendingar eigum eftir Halldór okkar Laxness. Þessi orð úr Maístjörnunni hafa alltaf snert mig.Þau minna mig á vonina.Vonina sem kviknar þegar eitthvað nýtt er í vændum.Vonina sem lifir jafnvel þegar vindurinn hvín og vorhret er á glugga. Við þekkjum það öll að lifa á tímum þar sem margt er þungt og erfitt.Margir félagsmenn verkalýðsins hafa áhyggjur af launum, afkomu, húsnæði og réttindum sínum.Margir hverjir hafa einnig upplifað að kerfið sé fjarlægt, flókið eða ekki nægilega aðgengilegt fólkinu sjálfu. En rétt eins og í ljóðinu þá trúi ég því að alltaf sé til stjarna sem skín.Fyrir mér á Verkalýðsfélag Suðurlands að vera sú stjarna fyrir félagsmenn sína.Það á að vera afl sem veitir von, styrk og skýra forystu.Félag sem stendur með fólki, hlustar á það og vinnur fyrir það af heilindum. Þess vegna býð ég mig fram til formanns. Ég geri það ekki vegna titils. Enginn getur einn síns liðs komið skipi í höfn.Við erum listi fjölbreytts hóps fólks sem er annt um félagsfólk og þeirra tilfinningu að eiga athvarf í félagi sem er raunverulega þeirra megin. Við viljum félag sem er hlýtt en sterkt.Félag sem talar skýrt.Félag sem er aðgengilegt öllum, sama hvaðan fólk kemur eða hvaða tungumál það talar. Við viljum að verkalýðsfélag eigi ekki aðeins að sinna málum á pappír eða í tölvusamskiptum.Það á að vera rödd þeirra sem mæta á hverjum degi til vinnu og halda samfélaginu gangandi.Það á að vera skjól þegar á reynir og afl sem berst fyrir bættum kjörum og meiri virðingu. Í Maístjörnunni er talað um stjörnu sem skín þrátt fyrir kulda og óveður. Við á B-lista teljum að það sé einmitt það sem við þurfum núna.Skýra sýn.Hlýju.Samstöðu.Og trú á að gott geti orðið betra. Við viljum leggja fram okkar reynslu, kraft og okkar hjarta í það verkefni að byggja upp sterkara, opnara og réttlátara Verkalýðsfélag Suðurlands.Félag sem félagsmenn geta treyst.Félag sem hlustar.Félag sem sameinar. Höfundur er Bergþóra Haralds Eiðsdóttir fyrir hönd B-lista framboðs til stjórnar VLFS.
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar