Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið Icewear 10. apríl 2026 09:12 Á Skósparki er veittur 30-40% afsláttur af öllum gönguskóm hjá Icewear þessa dagana. Mynd/Ondrej Holub. Vorið er að ganga í garð og með því vaknar löngunin að njóta íslensku náttúrunnar. Þar af leiðandi er tilvalið að huga að rétta búnaðinum, enda skiptir gæðafatnaður sköpum í útivist. „
Icewear leggur mikla áherslu á að bjóða upp á eitt mesta úrval landsins af vönduðum göngufatnaði fyrir alla fjölskylduna,” segir Sigrún Edda Elíasdóttir, markaðsstjóri Icewear. „Skóspark og Krakkadagar eru í fullum gangi og það er virkilega skemmtilegt að sjá hversu margir eru farnir að huga að útivistinni.“ Icewear býður upp á gæðaskó frá Asolo, Salewa og Helly Hansen í verslunum og vefverslun.Mynd/Ondrej Holub. Gæðamerki fyrir allar göngur Í verslunum Icewear Magasín á Laugavegi 91, Fákafeni 9, Smáralind og Kringlunni er að finna heimsþekkt gæðamerki í skóbúnaði á borð við Asolo, Salewa og Helly Hansen en einnig selur Icewear sinn eigin skóbúnað. „Við leggjum mikinn metnað í að bjóða breitt úrval af gæðaskóm til að mæta ólíkum þörfum fólks. Merki á borð við Asolo, Helly Hansen og Salewa henta til dæmis sérstaklega vel í krefjandi göngur þar sem reynir á stuðning og grip,“ segir Sigrún. „Fagfólk okkar leggur metnað sinn í að aðstoða viðskiptavini við að finna rétta skóbúnaðinn enda skiptir rétt undirstaða öllu máli, fyrir bæði þægindi og öryggi á göngunni.“ Eldur flísfóðraða regnsettið er létt en hlýtt og hentar því einkar vel hvernig sem viðrar.Mynd/Ondrej Holub. Krakkadagar: Allt fyrir litlu útivistargarpana Krakkadagar eru einnig í fullu fjöri samhliða Skósparkinu en Icewear er með fjölbreytt úrval af fötum fyrir börn sem þola allan leik, göngur og íslenska veðráttu. Sérstaða Icewear felst í íslenskri ullareinangrun en Reykjanes jakkinn fyrir börn er gott dæmi um slíka hönnun. Jakkinn er bæði hlýr og léttur sem gerir krökkunum kleift að hreyfa sig óhindrað án þess að klæðnaðurinn verði fyrirferðarmikill. Reykjanes jakkinn með íslenskri ullareinangrun er hlýr en léttur og því tilvalin fyrir íslenska veðráttu.Mynd/Salka Þorsteinsdóttir. Fyrir rigningardaga hentar regnjakkinn Eldur sérlega vel en hann er flísfóðraður til að halda krökkunum þurrum og hlýjum svo að hvorki væta né kuldi nái að trufla leikinn úti í náttúrunni. Þegar nær dregur sumri og loftið tekur að hlýna er léttari valkostur á borð við Gola útivistarjakkann fullkominn fyrir allar fjölskylduferðirnar. Til að hámarka þægindin fyrir litlu útivistargarpana er tilvalið að para slíka jakka við Hvítanes merino-grunnlagið sem andar vel og flytur raka frá húðinni. Eldur jakki og buxur, flísfóðrað regnsett í nýjum litum.Mynd/Salka Þorsteinsdóttir. Að lokum má nefna Mosar sherpa flíspeysuna sem kemur sér vel sem yfirhöfn í öll ævintýrin sem eru framundan. Mosar línan hjá Icewear innifelur einnig vesti fyrir börn og ungbarnagalla. Mosar barna flíspeysan er hlý og góð utanyfir flík, væntanleg á næstunni í nýjum lit.Mynd/Salka Þorsteinsdóttir. Allt fyrir útivistina beint heim að dyrum Fyrir þau sem komast ekki í verslanir Icewear er vefverslunin icewear.is opin allan sólarhringinn. Þar er hægt að kynna sér úrvalið, skoða liti og stærðir í rólegheitum og fá vörurnar sendar beint heim að dyrum eða á næsta afhendingarstað. „Við viljum tryggja að allar fjölskyldur séu klárar í göngutímabilið og útivistina framundan. Góður útivistarfatnaður leggur grunninn að ógleymanlegum stundum og gæðasamveru úti í náttúrunni,“ segir Sigrún að lokum.
Tíska og hönnun Heilsa Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira