Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. apríl 2026 22:37 Vilhjálmur Forberg var dæmdur til greiðslu hundrað þúsund króna sektar vegna brots gegn einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Smáríkið Fyrirkomulagi áfengissölu félaganna Kjútís ehf. og Icelandic Trading Company b.v., sem starfrækir vef Smáríkisins, var að mati dómara beinlínis komið á til þess að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis. Engu breyti þótt alþingismenn og ráðherrar segi slíkt fyrirkomulag löglegt.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem fréttastofa hefur undir höndum. Vilhjálmur Forberg var í gær dæmdur til greiðslu hundrað þúsund króna sektar fyrir að hafa sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi í Kjútís ehf. og daglegur stjórnandi í Icelandic Trading Company b.v. (ITC) þann 30. maí 2024 selt einn þriggja lítra hvítvínsbelg af tegundinni BiB Frontera Chardonnay, fyrir 6.898 krónur í smásölu. Salan fór fram í gegnum vefsíðuna www.smarikid.is, sem starfrækt væri af ITC. Áfengið hefði síðan verið afhent af sendli á vegum Wolt. Umrædd smásala áfengisins hefði verið liður í atvinnustarfsemi beggja félaganna. Kjútís ehf. hefði keypt áfengið af áfengisheildsala á Íslandi á grundvelli tímabundins leyfis til heildsölu áfengis og geymt það á starfsstöð sinni að Fellsmúla 24 í Reykjavík þar til áfengið var selt og afhent umræddum einstaklingi. Viðskiptin hefðu farið fram án þess að Vilhjálmur Forberg og félögin sem hann veitti fyrirsvar hefðu leyfi til smásölu áfengis á Íslandi en samkvæmt 1. mgr. 10. gr. áfengislaga hefur Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins einkaleyfi til smásölu áfengis. Þannig hefði ITC ekki flutt áfengið til Íslands í kjölfar pöntunarinnar í gegnum vefsíðuna heldur haft milligöngu um smásölu áfengis. Vilhjálmur hefði þannig brotið gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis á Íslandi. Ákæran ekki talin óljós Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að Vilhjálmur hafi krafist sýknu en til vara vægustu refsingar. Fyrir dómi sagði Vilhjálmur að ákæran væri í mikilvægum atriðum óljós og það hefði áhrif á möguleika hans til að grípa til varna. Dómurinn féllst ekki á að svo væri, og tók fram að í ákæru væri því lýst með greinargóðum hætti hver hin saknæma háttsemi sem talin var refsiverð af hans hálfu væri. Þá kemur fram í niðurstöðum dómsins að ekki virðist ágreiningur um hvert fyrirkomulag þeirra viðskipta sem Kjútís ehf. og ITC stunda er. Ágreiningurinn snúi að því hvort fyrirkomulagið sé í samræmi við íslensk lög. Meintur forsvarsmaður yppti öxlum Fyrir dómi benti Vilhjálmur á að hann hefði ekki verið framkvæmdastjóri ITC þegar hvítvínið var selt í maí 2024. Hann hafi vissulega verið í stjórn félagsins og haft prókúru þótt hann tæki ekki þátt í daglegum rekstri þess. Stjórnandi félagsins væri gömul skólasystir hans sem var búsett í Hollandi. Skólasystirin lýsti því fyrir dómi að hún hefði ekki vitað hver tilgangur ITC væri og treysti sér ekki til þess að segja til um hvaða starfsemi félagið hefði haft með höndum. Hún sagðist hvorki hafa stjórnað félaginu né vitað hver hefði aðgang að bankareikningum þess. Dómurinn leit svo á að skráning hennar sem forsvarsmanns ITC hefði því verið til málamynda vegna búsetu hennar í Hollandi og því mætti fullyrða að hann hafi verið daglegur stjórnandi í ITC í maí 2024. Héraðsdómur benti sömuleiðis á að hvorki Kjútís ehf. né ITC hafi flutt vörur út fyrir tollsvæði íslenska ríkisins á tímabilinu 1. september 2023 til 31. maí 2024. Þá hafi Vilhjálmur undirritað þjónustusamning milli Kjútís ehf. og ITC fyrir hönd beggja aðila. ITC sé ekki með starfsemi á Íslandi en selji þrátt fyrir það áfengi til aðila hérlendis með milligöngu Kjútís ehf. Stærstur hluti þess áfengis sem selt er hafi verið framleiddur hér á landi og aldrei farið úr lögsögu íslenska ríkisins. Slík starfsemi sé smásala áfengis. Gildir einu hvað ráðamenn segja Að því virtu, ásamt öðrum rannsóknargögnum málsins, taldi dómurinn að því fyrirkomulagi sem Kjútís ehf. og ITC höfðu á áfengissölu hafi verið komið á í þeim tilgangi að reyna að komast fram hjá einkaleyfi ÁTVR til smásölu áfengis á Íslandi. Sérstaklega er tekið fram í dóminum að engu breyti þó einstaka þingmenn og ráðherrar hafi í gegnum tíðina talið að starfsemi eins og ITC og Kjútís ehf. reka sé heimil samkvæmt lögum. Við ákvörðun refsingar, sem var sem fyrr greinir hundrað þúsund króna sekt, var litið til þess að Vilhjálmur hefði ekki áður sætt refsingu svo vitað sé. Greiðist fjárhæðin ekki í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins verður Vilhjálmi gert að sæta fangelsi í átta daga. Þá var hann dæmdur til að greiða málsvarnarlaun verjanda síns, 4,9 milljónir króna.
Dómsmál Netverslun með áfengi Áfengi Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira