Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. apríl 2026 06:58 Carlson hefur verið orðaður við forsetaframboð árið 2028, sem „ekki Trump“ kandídat Repúblikanaflokksins. Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn á Truth Social í gær og sagði nokkra stuðningsmenn sína heimska brjálæðinga, í kjölfar gagnrýni þeirra á hernað Bandaríkjanna í Íran og hótanir Trump um tortímingu íranskrar siðmenningar.Hlaðvarpsstjórnendurnir Tucker Carlson, Megyn Kelly, Candace Owens og Alex Jones, sem öll voru eitt sinn meðal háværustu stuðningsmanna Trump, hafa öll gagnrýnt orðræðu forsetans.Carlson, sem hefur verið mjög gagnrýninn á hernað Bandaríkjanna í Íran, fór afar hörðum orðum um Trump á mánudaginn og sagði hótanir forsetans um árásir á innviði í Íran ekki bara stríðsglæp, heldur siðferðilegan glæp. Þá kallaði hann Truth Social færslu Trump á Páskadag, þar sem Trump skipaði Írönum að opna „fokking sundið“ og gerði lítið úr trú þeirra, ógeðfelldan.https://youtube.com/shorts/oVip75CF664?si=j2WBL6yUxMcKSD7dEmbed: CarlsonMegyn Kelly, sem hefur hingað til verið afar trú Trump, sagði fyrir sitt leyti að hún væri kominn með nóg af samfélagsmiðlafærslum forsetans.„Ég veit ekki með þig en ég er orðin langþreytt á þessum fjanda. Ég er kominn með nóg af þessu. Getur hann ekki bara hegðað sér eins og venjuleg manneskja?“ spurði Kelly. „Fokking haltu kjafti um þetta! Þú hótar ekki að þurrka út heila siðmenningu. Við erum að tala um almenna borgara... bara eins og ekkert sé, í samfélagsmiðlafærslu.“Owens kallaði Trump meðal annars brjálaðan þjóðarmorðingja og Jones velti því upp hvort það væri tímabært að koma forsetanum frá.Fjarar mögulega undan fasta fylginuTrump hélt því ranglega fram í samfélagsmiðlafærslu á Truth Social í gær að fjórmenningarnir hefðu unnið á móti sér í fjölda ára og sakaði þau um heimsku.„Þetta er heimskt fólk. Þau vita það, fjölskyldur þeirra vita það og allir aðrir vita það líka!,“ sagði forsetinn. Hann benti á að ástæðan fyrir því að þau væru nú hlaðvarpsstjórnendur væri að þau hefðu ekki enst í sjónvarpi en rétt er að geta þess að hlaðvörp fjórmenningana njóta öll mikilla vinsælda, ekki síst meðal stuðningsmanna Trump.Trump gerði lítið úr hverju og einu fyrir sig og kallaði þau aumingja. Þá sagði hann fjórmenningana, ekki tilheyra MAGA hreyfingunni í raun.Skoðanakannanir sýna að óvinsældir Trump hafa aldrei verið meiri í kjölfar hernaðaraðgerða Bandaríkjanna í Íran, enda hefur olíuverð farið hækkandi og sömuleiðis allur almennur kostnaður bandarískra neytenda.Sérfræðingar hafa hingað til viljað meina að þrátt fyrir svikin loforð um aðgerðir í efnahagsmálum og engar hernaðaraðgerðir á erlendri grundu, muni ákveðið hlutfall kjósenda alltaf standa fast við bakið á forsetanum.Nú virðist mögulega vera að fjara undan þeim stuðningi. Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Innlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Fleiri fréttir Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Sjá meira
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Innlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Erlent Algjör nýliðun í stjórn samtaka gegn spillingu Innlent Fleiri fréttir Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Sjá meira