Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. apríl 2026 09:00 Rikki G gæddi ótrúlegt mark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell miklu lífi með sinni lýsingu. sýn sport Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna.
Tímabilið 2014 var draumi líkast hjá Stjörnunni en liðið varð Íslandsmeistari án þess að tapa leik. Stjarnan vann einnig þrjú einvígi í forkeppni Evrópudeildarinnar og endaði á því að mæta ítalska stórveldinu Inter. Eitt af mörgum eftirminnilegum augnablikum hjá Stjörnunni sumarið 2014 var mark Atla gegn Motherwell. Í seinni hálfleik framlengingarinnar fékk Eyjamaðurinn boltann vinstra megin fyrir utan vítateiginn og lét vaða og boltinn fór í slána og inn. Þetta reyndist sigurmarkið í leiknum. Lýsing Ríkharðs Óskars Guðnasonar á markinu vakti mikla athygli en hann er, auk Atla, til viðtals í fimmta þætti Augnablikanna. „Ég man eiginlega ekkert eftir þessu, þegar boltinn fer í netið. Ég man ekkert hvað kom út úr mér. Ég sá það bara eftir á. Í miðri lýsingu, eftir markið, byrjaði síminn bara: ping, ping, ping. Alls konar skilaboð og töggin á Twitter. Þá áttaði ég mig á því; vá, hvað það voru margir að horfa,“ sagði Rikki er hann rifjaði lýsinguna upp. Klippa: Augnablikin - „Sjáiði þetta!!!“ Atli segir að markið gegn Motherwell sé eitt stærsta, ef ekki stærsta, augnablikið á hans ferli. „Þetta var einhvern veginn lygilegt. Við vorum frekar þreyttir þegar við fórum inn í framlenginguna og ég man að ég sagði, hvort það var við Loga Ólafsson sem var að lýsa með Rikka, hvort við ættum ekki bara að klára þetta í framlengingunni, ekki vítaspyrnukeppni, og það var svolítið skemmtilegt að standa við það á endanum. Þetta var ótrúlegt augnablik,“ sagði Atli. Stjarnan vann umræddan leik gegn Motherwell, 3-2, og einvígið, 5-4 samanlagt. Í næstu umferð sló Stjarnan Lech Poznan frá Póllandi út, 1-0 samanlagt, en Evrópuævintýri liðsins lauk svo gegn Inter. Brot úr „Sjáiði þetta!!!“, fimmta þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 23:10 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Evrópudeild UEFA Stjarnan Augnablikin Tengdar fréttir Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03 Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00 Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00 Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02 Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Fleiri fréttir Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjá meira
Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03
Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00
Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02
Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02