Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar 12. apríl 2026 13:30 Sem þjóðfélag verðum að standa skil á þeirri skuld sem við verðum að gjalda og það er samviska samfélagsins. Ferð sem átti að vera gleði og samvera í aðdraganda jóla breyttist í harmleik. Þetta er ekki bara sorgleg saga sem hverfur úr umræðunni eftir nokkra daga heldur er þetta afleiðing og niðurstaða kerfis sem brást og horfði þegjandi á. Á Íslandi býr drengur, sem þurfti að fara þúsundir kílómetra frá heimili sínu og ástvinum til að fá meðferð við vímuefnavanda, sjúkdóm sem dregur til dauða ef ekkert er að gert og hér á landi er það orðið æ tíðara að við missum börnin okkar vegna fíknisjúkdómsins. Drengurinn var sendur til Afríku ekki vegna þess að fjölskyldan vildi það, heldur vegna biðlista og skorti á sérhæfðri þjónustu og eina leiðin sem þau sáu færa var að senda drenginn úr landi. Þegar dró að jólum, hátíð ljóss og friðar vildi fjölskylda hans fara og færa honum gjafir og eiga með honum fallegar stundir, sú ferð breyttist í martröð. Þau komu aldrei heim og þrjú líf slokknuðu og eftir situr drengur, einn í útlöndum, sem þarf nú að lifa með missi sem enginn ætti að þurfa að bera og á sama tíma að berjast við að halda sér á lífi. Blessuð sé minning þeirra og votta ég aðstandendum samúð mína. Fjölskyldan fekk martröð í jólagjöf í boði kerfis og samfélags sem brugðust. ,Það sem var í boði biðlistar, skortur á sérhæfðri þjónustu og endalaus bið og eina leiðin til bjargar var að senda drenginn úr landi. Hvað segir það um samfélagið okkar og brotið kerfi? Og eigum við að kalla þetta „óheppni“? Nei! Ef kerfið og samfélagið hefði virkað, hefði drengurinn verið í meðferð á Íslandi.Ef kerfið og samfélagið hefði virkað, hefði fjölskyldan ekki þurft að fara til Suður-Afríku.Ef kerfið og samfélagið hefði virkað, hefði þessi ferð aldrei átt sér stað. Þá væri þessi fjölskylda líklega á lífi. Ég er ekki að fullyrða neitt en tel meiri líkur á því að þau væru lifandi í dag ef þessi ferð hefði ekki verið farin. Þetta er sú staðreynd sem enginn vill segja upphátt. Því sannleikurinn er sá að þetta byrjaði löngu áður en slysið varð. Þetta byrjaði þegar drengurinn fékk ekki þá hjálp sem hann þurfti hér á landi. Þegar fjölskyldan bankaði á dyr kerfisins og fékk engin svör. Þegar biðin varð hættuleg og úrræðaleysið algjört. Þá var ákvörðunin tekin og drengurinn var sendur út í hjálpina, ekki af kæruleysi heldur af skilyrðislausri ást fjölskyldu og örvæntingu til að bjarga lífi drengsins. Stjórnvöld bera ábyrgð, ekki óbeint, ekki að hluta til heldur beint. Þau ákveða hvernig kerfið er byggt upp. Þau ákveða hvort börn fá hjálp eða eru látin bíð. Þau ákveða hvort fjölskyldur fá stuðning eða standa einar í baráttu sem þær geta ekki unnið. Samfélagið ber líka ábyrgð, við eigum að þrýsta á stjórnavöld þegar okkur finnst þau ekki vera að standa sig. Og í þessu tilfelli brást allt, samfélagið og stjórnvöld. Það er ekki nóg að senda samúðarkveðjur.Það er ekki nóg að lofa breytingum eftir á, þegar orðin koma of seint, missa þau merkingu. Spurningin sem situr eftir er einföld, en óþægileg: Hversu mörg börn þurfa að lenda í þessari stöðu?Hversu margar fjölskyldur þurfa að brotna?Hversu mörg líf þurfa að tapast áður en eitthvað breytist? Þettar einstakt mál, samt er það bara eitt af þeim sem við heyrum um og ef ekkert breytist mun þetta gera gerst aftur og aftur. Og næst gæti það verið önnur fjölskylda sem leggur af stað í ferð sem hún kemur kanski aldrei heim úr. Í erfiðum málum sem þessum sitja mörg,,ef” eftir. Við fáum litlu um niðurstöðu þessa sára máls breytt, en ég skil samt eftir nokkur ,,ef” og læt ykkur þau eftir til að hugsa um. Við verðum að takast á við það að æska landsins þarf að eiga greiða leið að hjálp við banvænum sjúkdómi, fíknisjúkdómnum, aukning á dauðsföllum ungmenna/barna hér á landi er ólíðandi og má líkja því við hamfarir og hvað gerum við í hamförum? Ef ekkert breytist, þá mun þetta gerast aftur! Höfundur er sjúkraliði sem lætur sig mál fíknisjúkra og aðstandenda miklu skipta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fíkn Börn og uppeldi Meðferðarheimili Mest lesið Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir skrifar Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Hraðtíska kallar á aðgerðir Norðurlanda Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Þegar orðaslagurinn stríðir við þjóðarsálina Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Gervigreind er ekki sjálfkrafa góð eða slæm. Hún er alin upp Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson skrifar
Skoðun Opinber gögn eru þjóðarauðlind – ríkið verður að mynda eigið mállíkan Haukur Arnþórsson skrifar
Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson skrifar