„Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. apríl 2026 14:27 Kári Sverrisson er að byrja með þættina Litlu hlutirnir. Aðsend „Það eru litlu hlutirnir sem gefa lífinu merkingu,“ segir ljósmyndarinn, leikstjórinn og fagurkerinn Kári Sverris sem er að fara af stað með nýja þáttaseríu sem heitir einmitt Litlu hlutirnir.
Hér má sjá stiklu úr þáttunum sem verða sýndir á Vísi en tökumenn eru Juanjo Martínez og Arnar Dór Ólafs: Klippa: Litlu hlutirnir með Kára Sverris - stikla Í hraða nútímans gleymum við oft að staldra við. Athyglin leitar stöðugt áfram í það sem er næst, stærst eða mest áberandi, á meðan litlu hlutirnir, þeir sem í raun móta upplifun okkar af lífinu, verða auðveldlega ósýnilegir, segir Kári um seríuna en nýja þáttaserían hans snýr sjónum aftur að þessum augnablikum. Þættirnir eru innblásnir af hugmyndafræði Kára og lífstílsvörumerkisins Appreciate The Details, sem hann stofnaði árið 2018. Þar hefur hann lagt áherslu á meðvitað líf, ró og að kunna að meta það sem er einfalt, fallegt og raunverulegt, gildi sem endurspeglast skýrt í þáttunum. Kári hefur á undanförnum árum starfað á alþjóðavettvangi sem ljósmyndari og leikstjóri, unnið með stórum vörumerkjum og skapað myndefni sem hefur birst víða um heim. Í Litlu hlutunum nálgast hann þó efnið á annan hátt. Þetta snýst ekki um fullkomna uppsetningu eða stjórnað augnablik, heldur um að skapa rými þar sem eitthvað óvænt og einlægt getur átt sér stað, segir Kári. Í hverjum þætti hittir hann fólk með ólíkan bakgrunn og reynslu. Samtölin eru að hans sögn látlaus og heiðarleg og gefa rými fyrir það sem oft fer fram hjá manni. „Við erum oft að leita að einhverju stærra,“ segir Kári. „En það eru litlu hlutirnir sem gefa lífinu merkingu.“ Sjónrænn stíll þáttanna ber skýr merki bakgrunns Kára. Mjúkt ljós, næm samsetning og áhersla á náttúrulega áferð skapa rólegt og nærandi andrúmsloft. Það er ekki verið að flýta sér heldur er verið að leyfa augnablikunum að þróast og vera til staðar á sínum eigin forsendum. Í fréttatilkynningu segir jafnframt: „Litlu hlutirnir eru ekki aðeins sjónvarpsþættir, heldur framhald af þeirri nálgun sem Kári hefur byggt upp í sínu starfi og í Appreciate The Details. Þeir minna okkur á að hægja á, anda aðeins og taka eftir því sem hefur alltaf verið þarna, ef við gefum okkur tíma til að sjá.“ Þættirnir verða átta talsins og fer sá fyrsti í loftið 24. apríl næstkomandi.
Bíó og sjónvarp Menning Tíska og hönnun Litlu hlutirnir Mest lesið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Sjá meira