Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Eiður Þór Árnason skrifar 13. apríl 2026 22:14 Helga Hjartardóttir og Helga Lísa Helgadóttir eru dýralæknar og eigendur Animalíu. Aðsend Tvö gæludýr hafa greinst með einkenni frostlagareitrunar á þremur dögum eftir að hafa étið pylsubita sem fundust á jörðinni við Hvamm í Kjós. Dýralæknar vara gæludýraeigendur við hættunni og eru málin til skoðunar hjá MAST.
Hundur drapst eftir að hafa étið slíka pylsubita á föstudag og var köttur frá sama svæði lagður inn á dýraspítala í dag. „Sterkur grunur er um að hér sé um viljaverk að ræða,“ segir í færslu Animalíu gæludýrasjúkrahúss á samfélagsmiðlum. Hundurinn sendur í krufningu Helga Lísa Helgadóttir, dýralæknir og annar eigenda Animalíu, segir hundinn hafa verið sendan í krufningu til að ganga úr skugga um dánarorsök. Bæði dýrin hafi komið inn á bráðamóttökuna hjá Animalíu en Helga hefur ekki upplýsingar um núverandi ástand kattarins. Hún bætir við að mál sem þessi hafi ekki áður komið inn á borð til þeirra en Helga hafi líkt og aðrir heyrt sögur af álíka tilfellum. „Þegar maður fær dýr og allur grunur bendir á þetta þá er þetta dálítið hryllilegt. Maður bara trúði því ekki að fólk sé í alvöru þarna úti að gera þetta.“ Vilja vara eigendur við Helga segir um að ræða eina af fáum tegundum eitrana sem hægt sé að staðfesta með krufningu. Erfitt sé að meðhöndla dýrin eftir að þau eru farin að sýna einkenni frostlögurseitrunar. Dýralæknar Animalíu vilji eindregið vekja athygli á þessum málum og vara dýraeigendur á svæðinu við. „Þetta þarf að komast sem lengst. Auðvitað er auðveldara fyrir fólk að passa upp á hundana sína en kettina. Það er erfitt að fara að halda öllum dýrum inni en ég veit ekki hvað annað maður ætti að gera. Þetta er líka frekar opið og stórt svæði.“
Dýr Kjósarhreppur Gæludýr Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira