Körfubolti

„Ó­trú­legar 50 mínútur af körfu­bolta“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Hilmar Smári Henningsson reyndist Stjörnuliðinu eins og svo oft áður gulls ígildi í þessum leik. 
Hilmar Smári Henningsson reyndist Stjörnuliðinu eins og svo oft áður gulls ígildi í þessum leik.  Vísir/Anton Brink

Hilmar Smári Henningsson og félagar hans hjá Stjörnunni eru komnir skrefi nær því að verja Íslandsmeistaratitil sinn eftir sigur gegn KR í mögnuðu körfuboltaleik á Meistaravöllum í kvöld. 

„Við erum auðvitað bara fyrst og fremst himinlifandi að vera komnir áfram í undanúrslit eftir þetta rosalega erfiða einvígi við frábært KR-lið. Þetta voru ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta þar sem liðið skiptust á að taka áhlaup. Sem betur fer áttum við það síðasta og unnum,“ sagði Hilmar Smári Henningsson sem skoraði 35 stig í leiknum. 

„Það var auðvitað hrikalegt að horfa upp á Ægi Þór lenda í þessum hörmulegu meiðslum. Við höfðum hins vegar engan tíma til þess að pæla of mikið í því þegar það gerðist. Nú fer ég inn í klefa að fagna þessum sigri og heyri svo hvernig hann hefur það,“ sagði Hilmar Smári um tilfinninguna að sjá liðsfélaga verða fyrir því að olnbogabrotna í þriðja leikhluta. 

„Við erum komnir skrefi nær því að ná ætlunarverki okkar sem er að verja Íslandsmeistaratitilinn. Það voru einhverjir sérfræðingar sem höfðu ekki trú á okkur og spáðu KR áfram. Við vorum hins vegar sannfærðir um að við færum áfram og erum glaðir að það sé orðin staðreynd,“ sagði hann. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×