Frístundaheimili eru grunnþjónusta Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 15. apríl 2026 06:01 Meirihlutinn í Reykjavík hefur ákveðið að skerða þjónustu frístundaheimila. Þau eiga nú að loka 16:30 í stað 17:00. Meirihlutinn ber við fjárskorti en hefur þó dælt fjármunum í ýmiskonar verkefni í aðdraganda kosninga og þökk sé þeim viðsnúningi sem varð á rekstri borgarinnar undir forystu Framsóknar er ráðgert að skila um fimm milljarða afgangi í rekstri borgarinnar, samkvæmt fjárhagsáætlun ársins. Meirihlutinn telur þó ekki ástæðu til að verja krónu af því fjármagni í þessa mikilvægu þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra. Ákvörðunin er ekkert annað er þjónustuskerðing við barnafjölskyldur í borginni. Hvert fara byrðarnar? Þessi ákvörðun kemur strax í kjölfarið á breyttri gjaldskrá leikskóla sem setur mikinn þrýsting á foreldra að sækja börn sín fyrr ellegar greiða hærra verð. Frístundaheimili eru mikilvæg þjónusta við barnafjölskyldur en þar fer fram skipulagt fjölbreytt og faglegt frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6-9 ára að loknum skóladegi barna. Meirihlutinn hefur nú ákveðið að flytja byrðarnar af kerfinu sem á að þjónusta barnafjölskyldur yfir á foreldra sem margir hverjir geta ekki stytt vinnudaginn til að ná í börnin fyrr. Nú munu foreldrar með eitt barn á leikskóla og annað í frístund þurfa að sækja þau bæði fyrir klukkan 16:30. Fæst störf eru það sveigjanleg að hægt er að fara fyrr og ekki hafa allir efni á því að stytta vinnutímann sinn. Stytting opnunartíma frístundaheimila eykur þannig álagið á fjölskyldur og gerir þeim erfitt fyrir að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Það leggst enn þyngra á einstæða foreldra. Mönnun í frístundaheimila Þessi ákvörðun mun líka auka á mönnunarvanda frístundaheimila sem hefur verið talsverður. Flest störf í frístundaheimilum eru hlutastörf eftir hádegi, sem er oft sinnt af námsfólki. Styttri vaktir auka vandann því þær gera störfin síður eftirsóknarverð. Það munar nefnilega um 2,5 klukkustundum í tekjum af vinnu á viku hverri. Réttara hefði verið að ráðast í markvissar aðgerðir til að tryggja stöðugri mönnun, meðal annars með auknu samstarfi við háskóla sem kenna fög sem tengjast starfinu og skapa heilsdags og heilsárs störf í frístundaheimilum. Þá hefði líka verið eðlilegt að eiga samtal og samráð við foreldra og starfsfólk áður en ákvörðunin var tekin í skóla- og frístundaráði í lok mars. Stokkum spilin upp á nýtt Ef fjármagnið dugar ekki er lausnin að stokka spilin upp á nýtt og forgangsraða fjármagni þannig að tryggja megi áfram opnunartíma frístundaheimila til kl. 17:00. Við skuldum barnafjölskyldum að standa með þeim og tryggja þessa grunnþjónustu. Við í Framsókn munum standa vörð um opnun frístundaheimila og breyta þessu eftir kosningar. Setjum X við B. Höfundur er borgarfulltrúi og í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar 16. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira