Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. apríl 2026 06:44 Trump virðist ekki hafa gefist upp á viðræðum við Írani. Getty/Win McNamee Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum.
Trump ræddi við blaðamann New York Post í síma í gær um möguleikann á áframhaldandi viðræðum en umræddur blaðamaðurinn hafði ferðast til Islamabad til að fjalla um viðræðurnar síðustu helgi. Skömmu eftir að símtalinu lauk hringdi forsetinn í blaðamanninn og ráðlagði henni að dvelja áfram í borginni, þar sem borið gæti til tíðinda á næstu tveimur dögum. Trump vísaði í þessu samhengi til pakistanska hershöfðingjans Asim Munir, sem hann sagði hafa staðið sig sérstaklega vel. „Hann er frábær og þess vegna er líklegra að við förum aftur þangað,“ sagði forsetinn. Munir er sagður virtur bæði af Trump og íranska Byltingaverðinum. Erlendir miðlar hafa eftir embættismanni í Pakistan að Íranir hafi krafist þess að varaforsetinn JD Vance fari fyrir samningateymi Bandaríkjanna, þar sem þeir treysta ekki Steve Witkoff, sérlegum sendifulltrúa Trump, né tengdasyninum Jared Kushner. Bandaríska utanríkisráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu í gær eftir tveggja tíma fund sendiherra Ísrael og Líbanon og sagði viðræðurnar hafa verið uppbyggilegar. Þær miðuðu að því að taka fyrstu skref í átt að formlegum og beinum viðræðum milli ríkjanna. Forsvarsmenn Hezbollah hafa hins vegar sagt að samtökin muni ekki virða neina samninga milli Ísrael og Líbanon. Stjórnvöld í Líbanon hafa heitið því að afvopna samtökin.
Bandaríkin Donald Trump Íran Líbanon Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira