Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir og Erla Tinna Stefánsdóttir skrifa 15. apríl 2026 11:01 Atvinnustefna Íslands sem kynnt var á dögunum er mikilvæg viðurkenning á því að framtíðarsókn hagkerfisins hvílir á fjárfestingu í nýsköpun sem er forsenda aukinnar framleiðni. Nú skiptir mestu að þær trúverðugu aðgerðir sem hafa verið kynntar skili sér í starfsumhverfi sem einkennist af fyrirsjáanleika, stöðugleika og samkeppnishæfni. Tækni- og hugverkaiðnaður er ekki lengur hliðargrein heldur ein af meginútflutningsstoðum Íslands. Tækni- og hugverkaráð Samtaka iðnaðarins hefur nú verið stækkað og endurskipulagt til að mæta þessum nýja veruleika. Ráðið hefur sett fram metnaðarfulla stefnu um að greinin verði leiðandi stoð hagkerfisins fyrir lok áratugarins. Til að það markmið náist þarf að vanda til verka í þeim lykilmálum sem ráða mestu um áframhaldandi vöxt: stöðugu starfsumhverfi, menntakerfi sem mætir framtíðarþörfum og skýrri sýn á mikilvægi hugvits fyrir samkeppnishæfni þjóðarinnar. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er einföld: ætlum við að skapa þessari atvinnugrein umhverfi til vaxtar, eða ætlum við að horfa upp á tækifærin renna okkur úr greipum? Tölurnar tala sínu máli. Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að tækni- og hugverkaiðnaður skilaði 369 milljörðum króna í útflutningstekjur árið 2025 sem samsvarar 18,6% af heildarútflutningstekjum landsins. Þegar vörur og þjónusta sem byggja á hugverkum standa undir tæpum fimmtungi útflutnings er ljóst að um kjarnastarfsemi í verðmætasköpun þjóðarinnar er að ræða. Metnaður okkar ætti að standa til þess að Ísland verði fyrsti valkostur fyrir tækni- og hugverkafyrirtæki sem ætla sér stóra hluti á alþjóðlegum mörkuðum. Verðmæti verða ekki til í tómarúmi. Fyrirtæki fjárfestu 81 milljarði króna í rannsóknum og þróun (R&Þ) árið 2024. Gögnin sýna skýrt að hvatar virka; fjárfesting í R&Þ hefur aukist síðustu ár samhliða öflugum skattahvötum og renna um 96% skattahvata til fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði. Skattahvatar eru ekki hefðbundin ríkisútgjöld, heldur fjárfesting í framtíðartekjum þjóðarbúsins. Takist Íslandi ekki að halda í við þau lönd sem skara fram úr á þessu sviði, munu hugmyndirnar, fjármagnið og háframleiðnistörfin einfaldlega leita annað. Önnur af grunnforsendum vaxtar er menntakerfi sem býr atvinnulífinu þá færni sem nútíminn krefst. Við þurfum ekki bara fleiri hendur heldur rétta þekkingu og færni. Það er áhyggjuefni að skortur á STEAM-menntuðu fólki sé orðinn helsta vaxtarhindrun tækni- og hugverkaiðnaðar. Það skiptir ekki síður máli að leggja grunninn strax á fyrstu skólastigum, því áhugi, sjálfstraust og undirstöðufærni í raungreinum og tækni verða ekki til í háskóla einum saman. Atvinnustefna ríkisstjórnarinnar sýnir vilja til úrbóta með áherslu á iðn-, tækni- og háskólanám, en nú reynir á að þessi áform nái alla leið inn í skólastofurnar. Samkeppnishæfni Íslands ræðst af samspili margra þátta. Alþjóðleg samkeppni um hugvit, mannauð og fjárfestingu er hörð og Ísland má ekki bregðast við henni með hálfum skrefum. Atvinnustefna stjórnvalda staðfestir að sýnin er til staðar. Nú reynir hins vegar á það sem mestu skiptir: að fylgja henni eftir með skýrri forgangsröðun, samstilltu átaki og trúverðugri framkvæmd. Fyrir lítið hagkerfi er lykilatriði að velja þau svið þar sem Ísland hefur raunverulega burði, sérstöðu og vaxtarmöguleika og byggja þau upp til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Aðgerðir stjórnvalda þurfa einnig að ná til starfsumhverfis nýsköpunarfyrirtækja í víðum skilningi. Skýrari umgjörð um fjármögnun, einfaldara regluverk og öflugri innviðir fyrir rannsóknir eru ekki afmörkuð tæknileg atriði heldur skipta sköpum fyrir samkeppnishæfni landsins. Það sama gildir um getu Íslands til að byggja upp innviði á sviði gervigreindar og nýta þá tækniþróun til aukinnar framleiðni. Verkefnin framundan ganga út á að fögur orð atvinnustefnunnar birtist í efndum og áþreifanlegum breytingum. Efling Tækni- og hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins er mikilvægt skref í þessari vegferð. Með ráðinu verður til enn sterkari vettvangur fyrir metnaðarfullt, gagnadrifið og uppbyggilegt samtal við stjórnvöld um það sem nú skiptir mestu: að tryggja fyrirsjáanlegt og hvetjandi starfsumhverfi fyrirtækja í tækni- og hugverkaiðnaði, menntakerfi sem mætir framtíðarþörfum og sóknarplan fyrir Ísland. Markmiðin eru að hér blómstri nýsköpun sem aldrei fyrr, að verðmætasköpun aukist og að háframleiðnistörf, þekking og fjárfesting verði til og haldist hér á landi. Sækjum tækifærin saman – fyrir framtíð Íslands. Hulda er formaður Tækni- og hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins og Erla Tinna er hjá Samtökum iðnaðarins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Mest lesið Halldór 30.5.2026 Halldór Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegi aldurshópurinn í íslenskum sviðslistum Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Svona verndum við Ísland fyrir útlendingum Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar