Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar 15. apríl 2026 14:33 Það kom óneitanlega aftan að mér þegar sonur minn, sem nýverið kláraði menntaskóla, tók að efast um gagnsemi þess að fara í háskólanám. Við ræddum málið og ég áttaði mig enn betur á mikilvægi þess að verðmæti háskóla og háskólanáms sé í stöðugri endurskoðun og því sé skilmerkilega miðlað. Á tímum tæknibreytinga þegar kemur að gervigreind með tilheyrandi óvissu um hvernig framtíðin mun líta út er spurningin um virði háskólanáms ekki léttvæg. Á sama tíma sjáum við að háskólanám getur ekki takmarkast við miðlun eða aðgengi að upplýsingum. Til að takast á við spurninguna um virði þarf að horfa til þess að háskólanám í breytilegu umhverfi stuðli að lifandi og kviku samfélagi. Í slíku samfélagi er nemandinn í fyrirrúmi. Nemandi er ekki bara viðskiptavinur eða afurð, heldur manneskja og vitsmunavera. Verðmæti háskólanáms má þannig meta út frá því hve vel tekst til að búa til umhverfi þar sem mannvæn og mannleg samskipti eru í fyrirrúm – öflug samvinna, stuðningur við skapandi hugsun og heilindi. Varanlegustu verðmæti háskólanáms eru oft náin tengsl við samnemendur og kennara. Verðmætt háskólanám þarf að hafa sterkar rætur í atvinnulífinu og út í þjóðfélagið. Verðmætt háskólanám opnar dyr, ekki aðeins út í nærumhverfið heldur út í heim. Í Viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavik er unnið hörðum höndum að því að móta fjölbreyttar meistaranámsbrautir sem endurspegla þessi verðmæti. Hér er lagt upp úr því að nemendur eigi í milliliðalausum samskiptum og samstarfi við bæði kennara og aðra nemendur (Covid-19 sýndi vel mikilvægi þessa). Nemendur fást oft við raunverulegar áskoranir úr atvinnulífinu og til að hámarka gæði og alþjóðleg tengsl eru prófessorar frá virtustu háskólum heims fengnir til landsins til að kenna valin námskeið. Að sama skapi fer erlendum nemendum fjölgandi í HR. Mikilvægi stafrænnar tækni heldur áfram að aukast og notkun nýjustu lausna, svo sem gervigreindar, eru samþættar inn í flest námskeið deildarinnar, ásamt námskeiðum sem einblína á að efla stafræna þekkingu nemenda og notkun. Í meistaranáminu er tími nemenda virtur og þeim býðst að ljúka námi á aðeins einu ári. Nemendur geta líka valið að nýta sér sveigjanleika námsins og lokið því á lengri tíma, t.d. samhliða vinnu. Meistaranemar VHD geta valið á milli sérhæfðra námsleiða, sem allar miða að því að hver og einn geti búið sér til ný tækifæri með aukinni færni, t.d. innan nýsköpunar, stafrænnar tækni, markaðssetningar, mannauðsstjórnunar, fjármála eða endurskoðunar. Að lokum, forsenda þess að háskólanám standist tímans tönn og eigi svar við spurningunni um virði þess er að námið sé í stöðugri endurskoðun og lagað að breyttum aðstæðum og þörfum. Í því felst að fylgja eftir því skýra markmið að háskólanám auki hæfni nemenda til að vera leiðandi afl í starfi og eigin lífi. Höfundur er dósent og forstöðumaður meistaranáms Viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Háskólar Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar