Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir og Eiður Ragnarsson skrifa 15. apríl 2026 17:16 Starf sveitarstjórnarfulltrúa er umfangsmikið og tekur á fjölmörgum þáttum er varðar stefnu og rekstur sveitarfélagsins, þjónustu við fólk og vellíðan fólks í daglegu lífi, tækifæri til atvinnu og tækifæri atvinnulífsins til að vaxa og dafna. Það sem reynslan hefur kennt okkur er að erfiðasti hluti starfsins snýr að þeim þáttum sem við sjálf höfum ekki stjórn á, ytri þáttum og þá sérstaklega aðgerðum ríkisins. Það væri ósanngjarnt að halda því fram að fyrri ríkisstjórnir hafi ekki gengið á hagsmuni sveitarfélaga og íbúa landsbyggðanna en þessi ríkisstjórn er að ganga lengra á hlut landsbyggðanna en áður hefur verið gert og setja einhverskonar ný viðmið. Við höfum talað mjög skýrt, en það er ekki nóg að heyra það sem er sagt ef þú ætlar ekki að hlusta á það sem er verið að segja. Það voru og eru skrifleg loforð í gildandi samgönguáætlun um framkvæmd Fjarðarheiðarganga. Verkefni sem hefur verið samþykkt á samgönguáætlun ítrekað frá árinu 2011, þetta er ríkisstjórnin að svíkja. Axarvegur hefur verið inni á samgönguáætlun meira eða minna í 40 ár og er sáralítill hluti framkvæmdarinnar áætlaður á fyrsta hluta samgönguáætlunar sem liggur fyrir umhverfis- og samgöngunefnd. Til stendur að leggja niður Heilbrigðiseftirlitin á landsvísu, að mestu án samtals og í andstöðu við vilja sveitarfélaga. Það liggur í augum uppi að þessar breytingar munu bitna mest á landsbyggðinni, veitingastaðir úr alfaraleið þurfa nú að fá eftirlitsaðila frá 2 mismunandi stofnunum í stað einnar með tilheyrandi auknum kostnaði. Vert að er að benda á að Heilbrigðiseftirlit Austurlands er það best rekna hér á landi og með lægstu gjöldin. Fyrirhugaðar viðbætur afla í strandveiðikerfið eru góðra gjalda verðar og munu þær auka tekju og afkomumöguleika þeirra sem þær stunda, en á móti er línuívilnun og byggðarkvótar skertir eða aflagðir, sem hefur alvarleg neikvæð áhrif á minni útgerðir sem treysta á þessa potta til að tryggja heilsársstörf sem eru nauðsynleg til að viðhalda vinnu allan ársins hring. Hækkun á virðisaukaskatti á baðlón er hrein aðför að ferðaþjónustunni á landsbyggðinni, sérstaklega á Austurlandi þar sem mikilvægt er að styrkja ferðaþjónustuna yfir veturinn ekki veikja hana. Svo skulum við tala um jöfnun atkvæða. Allir þingmenn búa og starfa í Reykjavík, þarf þá höfuðborgarsvæðið þingmenn? Það má velta því fyrir sér hvort að atkvæðavægi ætti ekki að taka mið af stærð landssvæðis frekar en íbúafjölda. Austurland er 22% af Íslandi með 3 % þjóðarinnar. Nýjustu fréttir eru síðan þær að Loftbrúin muni taka breytingum, það verður nú sennilega ekki landsbyggðinni til bóta. Að standa vörð um hagsmuni sveitarfélags út á við snýst því um meira en að sækja fjármuni. Það snýst um að tryggja jafnræði, byggðafestu og framtíðarmöguleika. Kjörnir fulltrúar eru brúin milli heimabyggðar og stærra stjórnkerfis, og árangur þeirra getur haft afgerandi áhrif á þróun svæðisins til langs tíma. Með markvissri hagsmunagæslu og skýrri sýn geta þeir tryggt að sveitarfélagið fái þá athygli og stuðning sem það á skilið. Spurningin sem við stöndum frammi fyrir er því einföld, viljum við land með blómlegum byggðum, eða land þar sem þróunin leiðir óhjákvæmilega til enn meiri miðstýringar og samþjöppunar? Við í Framsókn hjá Múlaþingi höfum verið ófeimin við að rýna til gagns og koma með athugasemdir. Við munum halda áfram úti virkri hagsmunabaráttu fyrir Múlaþing. Við skulum tala skýrt fyrir hönd okkar sveitarfélags, okkar íbúa. Við gefum kost á okkur til að láta í okkur heyra, setjum x við B á kjördag Jónína Brynjólfsdóttir og Eiður Ragnarsson sem skipa 1. og 2. sæti á lista Framsóknar í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónína Brynjólfsdóttir Múlaþing Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar