Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 17. apríl 2026 20:36 Alma Ýr formaður ÖBÍ er með erindi á málþinginu. Vísir/Ívar Fannar Fatlaðar konur eru tvisvar til þrisvar sinnum líklegri til þess að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en aðrar konur. Formaður ÖBÍ réttindasamtaka segir þetta sláandi en í vikunni undirrituðu samtökin og Kvennaathvarfið samstarfssamning sem miðar að því að efla vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi.
Samstarfssamningurinn gildir til þriggja ára en Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, réttindasamtaka, segir hann hafa töluverða þýðingu. „Hann er náttúrulega fyrst og fremst hugsaður þannig að fatlaðar konur sjái og stúlkur og kynsegin sjái að þær geta leitað til til dæmis Kvennaathvarfsins vegna kynbundins ofbeldis.“ Mikilvægt sé að fatlaðar konur viti hvert hægt sé að leita þegar þær verða fyrir ofbeldi. „Þetta er hópur sem í rauninni veit ekki að hann getur leitað til Kvennaathvarfsins. Hann í rauninni telur að sér verði ekki trúað, hann þorir ekki og veit náttúrulega ekki af og þetta er bara mjög stór og fjölbreyttur hópur. Þannig að við erum svona að vekja athygli á því að í ljósi þess að fatlaðar konur eru bæði útsettari og líklegri og í meiri hættu á að verða fyrir kynbundnu ofbeldi og í rauninni hvers kyns ofbeldi.“ Þannig sýna rannsóknir að fatlaðar konur eru líklegri en aðrar konur til að verða fyrir ofbeldi. Þá tilkynna þær síður um ofbeldi en sú staðreynd að þær séu háðar umönnunaraðilum hafi þar mikil áhrif. „Það er nefnilega sláandi. Fatlaðar konur eru allt að tvisvar sinnum til þrisvar sinnum líklegri til þess að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi.“
Málefni fatlaðs fólks Kvennaathvarfið Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Sjá meira