Gefum loforð í sumargjöf Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar 23. apríl 2026 07:31 *Váviðvörun - efni greinarinnar getur ýft upp sárar minningar eða reynslu! Í nánast hverri viku birtast fréttir um kynferðisofbeldi gegn börnum á Íslandi. Það er bæði óþægileg og óþolandi staðreynd. Sérstaklega þar sem við vitum að einungis lítið brot af kynferðisbrotamálum rata í fréttirnar. Flest málin koma nefnilega ekki upp á yfirborðið. Kynferðisofbeldi gegn börnum gerist ekki óvart, það er einhver sem ákveður að velja sína útrás, þörf, hvöt eða löngun fram yfir velferð og friðhelgi barns. En mögulegir gerendur geta leitað sér aðstoðar t.d. hjá Taktu skrefið og fengið hjálp við að stoppa sig af þrátt fyrir mögulegar langanir eða þörf fyrir útrás. Það gæti bjargað stórum hópi barna frá því að bera þungar og fjölbreyttar afleiðingar kynferðisofbeldis ef fleiri mögulegir gerendur leituðu sér aðstoðar. Ofbeldi þrífst í þögn. Gerendur treysta jafnan á að aðrir fullorðnir séu ekki á varðbergi og þeir velja oftar en ekki barn sem þeir þekkja og vita að þeir geti sannfært um að þaga yfir brotinu. Því er gríðarlega mikilvægt að hvert einasta barn fái góða fræðslu um hvað má og hvað má ekki og mikilvægi þess að segja alltaf einhverjum sem þau treysta frá. Jafnvel þó manneskjan sem ,,brýtur reglur sem ekki má brjóta” sé einhver sem barnið þekkir vel eða þykir vænt um. Eðlilega getur það vaxið mörgum í augum að ræða slík mál við lítil börn en það þarf ekki að vera flókið og það þarf alls ekki hræða börn með samtalinu. Hér má t.d. finna efni sem hjálpar til við slíkt samtal. Ef barn segir frá kynferðisbroti þá þarf samfélagið að geta tekið á móti því og veitt viðeigandi stuðning og aðstoð. Þess vegna þurfa fullorðnir að kynna sér hvernig best er að bregðast við, hvert á að tilkynna mögulegt brot, hvernig þeir geta stutt við barnið sitt og hvaða úrræði eru til stuðnings bæði fyrir barnið og forsjáraðilana. Kerfið okkar þarf líka að vera í stakk búið til að grípa barn ef brotið hefur verið á því. Það ætti ekki að vera forréttindi hvar á landinu fólk býr eða á hvaða manneskju fjölskyldan lendir á innan kerfis hvernig þjónustu það fær. Fagleg vinnubrögð, hlýja og stuðningur óháð eðli brots geta verið ómetanlegur þáttur í því að gera sára reynsluna örlítið bærari. Kynferðisbrot gegn börnum er ekki náttúrulögmál, það eru brot sem aldrei ættu að gerast. Til að útrýma þeim þurfum við öll að standa saman og lofa börnum að vernda þau betur. Við getum lofað að sinna forvörnum, lofað að ræða við börn um líkamann, kynfærin, snertingar og leyndarmál. Við getum lofað að líta ekki undan, lofað að hlusta, trúa, styðja og tilkynna brot. Við getum öll lofað einhverju og því fleiri sem taka þátt því meri umræða verður í samfélaginu og það verður vonandi til þess að fleiri börn segja frá og fleiri mögulegir gerendur leita sér hjálpar fremur en að valda börnum skaða. Gefum börnum samfélagsins loforð í sumargjöf! Ég lofa að rjúfa þögnina og vera til staðar. Hverju lofar þú? Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir er verkefnisstýra ofbeldisforvarna- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum Höfundur er verkefnisstýra ofbeldisforvarna- og kynheilbrigðisverkefna Barnaheilla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
*
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar