Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 14:17 Morten Thorsby sér ekki eftir því að hafa stolist af hóteli norska landsliðsins í fyrra, fyrir ástina. Getty/Stuart Franklin Það vakti talsverða athygli í Noregi síðasta sumar þegar Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs í fótbolta, greindi frá því að einn leikmanna sinna hefði læðst af hóteli landsliðsins, vegna greddu. Nú hefur leikmaðurinn sjálfur útskýrt málið betur.
Solbakken hafði greinilega gaman af því að upplýsa fjölmiðla um það síðasta sumar, að einn leikmanna hefði læðst af hóteli landsliðsins og stolist til að sofa annars staðar eina nóttina. Solbakken bætti við að leikmaðurinn hefði reyndar ekki verið klókari en svo að hann skildi hurðina að herberginu sínu eftir opna, og „glæpurinn“ því verið auðleystur. Solbakken greindi svo frá meintri afsökun leikmannsins: „Hann var graður. Það var það sem hann sagði,“ sagði Solbakken og uppskar hlátur viðstaddra. Leikmaðurinn sem um ræðir er Morten Thorsby, leikmaður Cremonese á Ítalíu. Í viðtali við TV 2 staðfesti hann þetta en vildi meina að Solbakken hefði svo sannarlega fært í stílinn. „Þetta eru rangar upplýsingar sem hafa komið fram. Ég get upplýst að þetta var ég, en það var af mjög saklausum ásetningi og fínt stefnumót, sem nú hefur leitt til þess að við ætlum að gifta okkur. Ég stend við þetta og held að ég hefði gert þetta aftur,“ sagði Thorsby sem þarna hafði náð að nýta eitt af þeim fáu tækifærum sem atvinnumenn í öðru landi fá ár hvert til að gera hosur sínar grænar fyrir samlöndum sínum í Noregi. Aðspurður hvort að þarna hefði þá verið um svolítið rangt orðalag að ræða hjá Solbakken svaraði Thorsby: „Verulega rangt orðalag. Hann hatar nú ekki að fá salinn til að hlæja,“ sagði Thorsby léttur og bætti við að það væri augljóst að einhver annar hefði kjaftað í þjálfarann. Eins og fyrr segir endaði sagan vel því Thorsby og konan sem hann stalst til að hitta ætla nú að giftast. „Þetta var eitt af fyrstu skiptunum sem að við hittumst. Ég hef engan tíma sem atvinnumaður í öðru landi, svo ég get aldrei verið heima. Eina tækifærið mitt til að hitta hana var þarna,“ sagði Thorsby.
Fótbolti Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Sjá meira