Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar 21. apríl 2026 13:17 Já svona staðhæfingu eins og er í fyrirsögn þessa pistils er að finna á spjallþráðum á netinu. Einn aðili sagði að hann ætti nokkur börn og væri þess vegna það reynslumikill að hann teldi sig hæfan til að starfa við kennslu án þess að læra fagið því að hann vildi meina að allir gætu kennt. Ég er þessu auðvitað ósammála og vil benda á að fyrir mitt leyti þá taldi ég mig fyrst hafa þau verkfæri sem þurfti í minni kistu til lestrarkennslu þegar ég hafði lokið mínu háskólanámi sem kennari og farið á ótal námskeið varðandi lestrarkennslu eftir það bæði hérlendis og erlendis . Kennsla er svo miklu, miklu meira en það að hafa ofan af fyrir börnum og sinna grunnþörfum þeirra. Því miður fer ákveðinn hópur í samfélaginu á flug þegar neikvæð umræða um kennara fer af stað. Í aðdraganda kosninga heyrast stjórnmálamenn oft varpa ýmsu fram misgáfulegu og eitt af því er að leysa skuli kennaraskortinn í landinu með því að stytta kennaranámið. Einhverjir vilja meina að Aðalnámskrá grunnskóla sé vandamálið og hvernig nám er metið á grunnskólastigi og vilja ganga hratt í að breyta þeim vitum án samtals við þá sem þekkja til. Útgangspunkturinn hjá mörgum sem hafa skoðanir á menntamálum er því miður oft sá að fagþekkingin í málaflokknum skipti litlu máli. Þetta eru einstaklingar sem eru ekki menntaðir kennarar né hafa unnið við kennslu. Það vill líka oft verða þannig að mikilvægar ákvarðanir eru teknar án samráðs við fagfólkið sem þarf að starfa eftir breytingunum. Ég las í pistli á netinu þar sem menntakerfinu var líkt við bíl með bilaða vél og bilanagreiningin hjá stjórnvöldum væri að það þyrfti að skipta um áklæði á sætunum. Þetta er heila málið. Það er ekki nóg að tala bara við þá sem líta inn um gluggann á bílnum og sjá áklæðið. Hvernig væri að tala við þá sem keyra bílinn ? Fyrir utan þann vanda sem kennarar greina á gólfinu og birtist í líkingu sandstorms á hverjum degi þá eru stjórnvöld ekki að auðvelda róðurinn með því að tala niður til kennara. Þetta síðasta útspil menntamálaráðherra hefur aldeilis fengið ýmsa hópa til að hrópa á torgum vefmiðlanna gegn kennarastéttinni. Kennarar fá aldeilis að heyra það þessa dagana að þeir séu ekki að standa sig í stykkinu. Úthrópanir eins og að börn landsins kunni mörg hver ekki að lesa þrátt fyrir áralanga skólagöngu og séu þjóð sinni til skammar í Pisaprófum. Í alvöru fólk. Hverjir hafa rýnt í alla þá þætti sem liggja þarna að baki í raun ? Réttið upp hönd. Við kennarar vissum í hvað stefndi fyrir aldarfjórðungi síðan og reyndum að ná til eyrna stjórnmálamanna sem hlustuðu ekki. Ekki reyna að klína vandanum í dag alfarið á kennarastéttina því þetta er samfélagslegt vandamál í boði stjórnvalda. Mér er margt til lista lagt varðandi hluti sem ég hef haft snertiflöt við í daglegu lífi þó ég úthrópi mig ekki sem fagaðila á því sviði. Menntamál eru stór hluti af tilveru hverrar þjóðar og flestir hafa skoðun á þeim málaflokki því að hann er hluti af tilveru okkar allra á ákveðnum tímapunkti. Ég hef grun um að margir geri sér ekki grein fyrir því hvernig skólakerfið hér á Íslandi er uppbyggt í dag í samanburði við skólakerfi í samanburðarlöndunum. Það er ekki langt síðan að skólaskylda hér á landi varð með því móti sem hún er í dag. Sumir benda á að áður fyrr hafi mörg börn verið læs áður en þau byrjuðu sína skólagöngu sem er rétt því að margir foreldrar sendu börn sín í einkatíma í lestri áður en hefðbundin skólaganga hófst. Með því að undirbúa börn sín á þennan hátt þá voru foreldrar að benda börnum sínum á mikilvægi þess að læra að lesa sem undanfara þess að geta lesið sér til gagns. Öll jákvæð hvatning er af hinu góða. Það sem ég tel vera dragbít í íslensku menntakerfi í dag er í stuttu máli neikvætt viðhorf til málaflokksins, það vantar líka úrræði fyrir börn í vanda sem hafa ekki forsendur til að vera í almennum skóla en eru þar í dag með tilheyrandi vanlíðan fyrir þau og aðra, það vantar líka námsgögn við hæfi og þá sérstaklega fyrir ÍSAT nemendur og nemendur með sérþarfir, hraði samfélagsin veldur mörgum börnum vanlíðan, mörg börn eiga fáar gæðastundir með fullorðnum og skortir góðar fyrirmyndir, svo ég tali nú ekki um að meira samtal mætti vera við fagfólk í menntageiranum varðandi breytingar. Áður en einhverjar netsprengjuvörpur lenda á mér þá vil ég útskýra hvað ég meina með því þegar ég tala um börn í vanda sem hafa ekki forsendur til að vera í almennum skóla. Stundum er það þannig að nemendur þurfa sérhæfðari aðlögun en skóli án aðgreiningar með stórum nemendahópum getur boðið upp á þó að útgangspunkturinn sé að bjóða upp á persónumiðað nám með leiðsögn, þar sem hugað er að samþættingu með lykilhæfni í huga. Við getum ekki horft framhjá því að innan skólakerfisins eru margir nemendur í það mikilli vanlíðan að þeir þurfa sérfræðiþjónustu til að komast í gegnum skóladaginn sem er ekki í boði í dag. Margt getur orsakað þessa þörf barna á sérfræðiþjónustu eins og áföll, brotin heimili, taugaraskanir eða annað undir sólinni. Á meðan við grípum ekki þessi börn þá eykst vandi þeirra sem hefur áhrif á þau sjálf og getur haft áhrif á aðra í kringum þau. Ég trúi því að með réttri nálgun þá getum við aðstoðað öll börn og hjálpað þeim að blómstra í skólakerfinu. Af hverju erum við á þessum stað sem við erum á í dag ? Ég vil meina eins og ég hef sagt áður opinberlega að ástæðan er sú að þegar sérskólarnir voru lagðir niður og við tókum upp stefnuna “Skóli án aðgreiningar” þá fylgdi ekki það fjármagn og þeir sérfræðingar með inn í skólana sem okkur var lofað og nauðsynlegt var að hafa til að dæmið gengi upp. Hruninu var kennt um á sínum tíma en það hafa skapast aðstæður eftir það til að bæta fyrir það sem miður fór en því miður hafa þau tækifæri ekki verið nýtt. Gerum ekki sömu mistök í menntageiranum og við gerðum í byggingargeiranum þar sem byggt var í óðagoti á methraða og flutt inn ófaglært fólk á færibandi því að iðnskólarnir á Íslandi höfðu ekki undan. Í dag erum við að súpa seyðið af þessu verklagi í byggingargeiranum með tilheyrandi gölluðum byggingum þar sem eru lekavandamál, mygla og annað sem hefur komið í ljós. Lengi býr að fyrstu gerð. Vöndum okkur. Rakel Linda Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í veikindaleyfi sem ber hag barna að leiðarljósi og er annt um menntamál Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rakel Linda Kristjánsdóttir Mest lesið Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun