Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar 22. apríl 2026 09:00 Íþróttafélögin í Reykjavík eru einstök. Þau eru sjálfseignastofnanir sem hafa byggst upp af sjálfboðaliðum og eru í dag ein af grunnstoðum Reykjavíkur í þjónustu við borgarbúa. Mikil fjölgun hefur orðið í iðkendafjölda íþróttafélaganna á síðustu árum og á sama tíma er aukin krafa um aukna þjónustu og fagmennsku. Almennt er það svo að um 95% af iðkendum félaganna eru börn og unglingar og er þátttaka vissra aldurshópa í íþróttum um 80%. Þetta er ekkert annað en fagnaðarefni, því að íþróttir eru í senn frábær forvörn, þær auka líkamlegt heilbrigði og bæta félagslegan þroska. En þessi aukning hefur skapað aukið álag á félögin, bæði starfsmenn og sjálfboðaliða sem ekki sé talað um mannvirkin. Á sama tíma er fjárhagsstaða félaganna almennt mjög slæm og því þarf að fara í endurskoðun á þjónustuhlutverki þeirra með tilliti til breyttra aðstæðna. Það er sorglegt en staðreynd að núverandi meirihluti í Reykjavíkurborg virðist vera í nöp við íþróttafélögin í borginni. Ítrekað hafa félögin verið svikin um loforð um uppbyggingu á félagssvæðum, jafnvel þó að undirritaðir samningar um slíka uppbyggingu liggi fyrir. Þá hafa samskipti borgarinnar við félögin verið slæm. Illa er svarað og seint og lítið um aðgerðir eða efndir í þeim málefnum sem félögin eru að glíma við. Í dag er ekkert samráð haft við félögin í tengslum við frístund og skóla. Því þarf að kippa í liðinn undir eins. Til dæmis neitar Reykjavíkurborg að starfsmenn frístundarheimila labbi eða fari í rútu með krökkunum á æfingar, sem ætti að vera hluti af þeirra starfi. Kerfið á að virka alla leið. Það er ekki hægt að ætlast til þess að íþróttafélögin geti sinnt félagsþjónustu við börn og unglinga, án þess að samráð sé haft við skóla og borgaryfirvöld. Íþróttafélögin í Reykjavík eru stolt okkar Reykvíkinga, þau eru kjarni hverfanna og lykilþáttur í uppeldi barna okkar. Borgin ætti að sýna félögunum og starfsemi þeirra meiri virðingu. Staðreyndin er sú að forsvarsmenn, sjálfboðaliðar og starfsmenn íþróttafélaganna eru að gefast upp. Það er gríðarleg óánægja innan íþróttahreyfingarinnar með framkomu borgarinnar í samskiptum við félögin. Íþróttafélögin hafa lagt mikinn metnað í að sinna starfi sínu eins og vel og þau mögulega geta, en hafa, því miður, ítrekað mætt dónaskap og valdahroka frá borgaryfirvöldum. Miðflokkurinn mun leggja áherslu á að íþróttafélögin í Reykjavík og Reykjavíkurborg muni sameiginlega laga þessi samskipti og tryggja betri þjónustu við börnin okkar. Þetta snýst ekki um fjármagn, þetta snýst aðallega um viðhorf og ákvörðunartöku. Það þarf að breyta þessu. Tækifærið er núna! Höfundur er í þriðja sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Lárus Blöndal Sigurðsson Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar