Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 22. apríl 2026 08:11 Hækkanir og sveiflur á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna innrásar Bandaríkjanna í Íran og lokunar Hormússunds minna okkur á að orkuskiptin eru ekki aðeins umhverfis- og loftslagsmál heldur líka grjóthart efnahagsmál. Þetta er í annað skipti á þessum áratug sem stórkostleg röskun verður á eldsneytismörkuðum vegna stríðsátaka og við sjáum hvernig áhrifin hríslast um heimshagkerfið. Hraðari og réttlátari rafbílavæðing er eitt af fimm forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem ég kynnti þann 12. september 2025. Í samræmi við þetta stóðum við fyrir stærstu styrkjaúthlutun sögunnar til orkuskiptaverkefna úr Loftslags- og orkusjóði í nóvember sem fól meðal annars í sér um 700 milljóna stuðning við uppbyggingu hleðsluinnviða, og svo felldum við niður vörugjöld af nýjum rafmagnsbílum um áramótin. 80% af orkunotkun Íslands byggir á endurnýjanlegri orku sem við framleiðum sjálf. Með því að skipta jarðefnaeldsneyti út fyrir hreina íslenska orku spörum við gjaldeyri upp á tugi milljarða, styrkjum enn frekar orkusjálfstæði Íslands og drögum úr berskjöldun heimila og fyrirtækja gagnvart ytri sveiflum sem við höfum enga stjórn á. Núna er rétti tíminn til að skipta yfir á rafmagn Ríkisstjórnin ákvað í byrjun mánaðar að verja heimilin fyrir hækkandi olíuverði með tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti af dælu. Þetta er skammtímaaðgerð sem veitir heimilum skjól, en til lengri tíma skiptir hitt öllu máli: að skapa skilyrði til hraðari rafbílavæðingar og gera sem allra flestum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni. Framleiðslukostnaður rafmagnsbíla hefur farið snarminnkandi á undanförnum árum og drægni þeirra aukist eftir því sem rafhlöðutækni fleygir fram. Úrval rafbíla á markaði hefur margfaldast og verð á þeim lækkað í samanburði við sambærilega eldsneytisbíla. Rekstrarkostnaður rafbíla er miklu lægri en eldsneytisbíla. Samkvæmt upplýsingum frá Orkusetri kostar 1.271 kr. að keyra 100 km á dæmigerðum bensínbíl, 1.800 kr. á díselbíl en tæpar 400 kr. á heimahlöðnum rafbíl. Lægri rekstrarkostnaður og minni munur á kaupverði þýðir að heildarkostnaður við rafbíla er í mörgum tilfellum orðinn lægri en heildarkostnaður sambærilegra eldsneytisbíla. Í ljósi þess að bensínverð er hátt á Íslandi en raforkuverð með því sem lægsta sem gerist í heiminum er efnahagslegur ávinningur og rekstrarsparnaður af rafbílavæðingu fyrir heimili og fyrirtæki meiri hér en í nágrannalöndunum. Raunar er óhætt að fullyrða að óvíða sé eins hagstætt og á Íslandi að skipta yfir á rafbíl. Með fjölgun hleðslustöðva eru skilyrðin til þess orðin betri en nokkru sinni fyrr. Fjórar markvissar aðgerðir árið 2026 Eftirspurn eftir rafbílum hefur tekið kipp víða um heim eftir að heimsmarkaðsverð olíu rauk upp vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum. Til þess að skapa enn betri skilyrði til hraðrar rafbílavæðingar og gera sem flestum kleift að taka þátt í henni hefur ríkisstjórnin nú tilkynnt um 500 milljóna átaksverkefni til uppsetningar hleðslustöðva sem kemur til framkvæmda strax árið 2026: Í fyrsta lagi styrkjum við uppsetningu hleðslustöðva í fjöleignarhúsum til þess að stuðla að jafnara aðgengi að hleðsluinnviðum óháð því í hvernig húsnæði fólk býr. Verður einkum horft til húsa sem voru byggð áður en skylt varð samkvæmt byggingarreglugerð að gera ráð fyrir hleðslustöðvum við nýbyggingar. Í öðru lagi fyllum við skipulega í götin á hraðhleðslunetinu hringinn í kringum landið. Markmiðið er að í lok ársins 2026 verði hvergi meira en 100 km á milli hraðhleðslustöðva á þjóðvegakerfinu og að hraðhleðslustöð sé að finna á hverjum einasta þéttbýlisstað á landinu. Í þriðja lagi styrkjum við uppsetningu hleðslustöðva við gististaði. Í ljósi þess hve bílaleigubílar eru hátt hlutfall nýskráðra bíla á Íslandi verðum við að hraða rafvæðingu bílaleiguflotans og gera rafbíla að eftirsóknarverðari kosti fyrir ferðamenn. Þéttriðnara hleðslunet á þjóðvegum landsins og fjölgun hleðslustöðva við gististaði hjálpa til við þetta. Í fjórða lagi vinnum við að samræmdara og einfaldara greiðslufyrirkomulagi vegna hleðslu rafbíla þannig að greitt sé með greiðslukortum í stað mismunandi snjallforrita. Markmiðið er að draga úr flækjustigi, bæta notendaupplifun og koma í veg fyrir að fólk mikli fyrir sér slíkar hindranir við val á ökutækjum. Frá hitaveitubyltingu til rafvæðingar samgangna Hlutfall rafbíla, tvinnbíla og tengiltvinnbíla af nýskráðum fólksbílum hefur vaxið hratt á undanförnum árum og rafvæðing þungaflutninga og stærri ökutækja jafnframt gengið hraðar en margir þorðu að vona. Samsetning bílaflotans er þannig að taka stakkaskiptum sem kallar á aukið framboð raforku, sterkara flutnings- og dreifikerfi og þéttriðnara rafhleðslunet um allt land. Ríkisstjórnin vinnur markvisst að öllu þrennu. Þegar olíukreppur riðu yfir heimsbyggðina á áttunda áratug síðustu aldar brugðust Íslendingar við með samstilltu átaki, hitaveitubyltingu þar sem olíukynding vék fyrir jarðhitanýtingu til húshitunar í hverju byggðalaginu á fætur öðru. Þannig styrktum við orkusjálfstæði okkar á undraverðum hraða. Við njótum góðs af þessu í dag. 90% heimila á Íslandi eru hituð með jarðhita sem veitir okkur ómetanlegt skjól þegar heimsmarkaðsverð olíu hækkar og sveiflast vegna ytri aðstæðna sem við ráðum engu um. Nú stendur yfir sams konar umbreyting í samgöngum þar sem dýr, óhrein og innflutt orka víkur fyrir hreinni, íslenskri og hagkvæmri orku. Þessi þróun mun halda áfram af fullum þunga og ekkert getur stöðvað hana. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Orkumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar