Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar 22. apríl 2026 13:01 Mikilvægt skref hefur nú verið tekið í átt að sterkari tryggingavernd fasteigna á Íslandi, sviði sem lengi hefur verið með ákveðið tómarúm. Samkvæmt lögum eiga húseigendur að brunatryggja allar fasteignir. Það á ekki bara við um fullbyggð hús, heldur líka á meðan framkvæmdir standa yfir. Það sem fáir átta sig þó á er að hefðbundið brunabótamat fylgir ekki sjálfkrafa með þegar verið er að byggja eða bæta við. Þær framkvæmdir þarf að tryggja sérstaklega. Og þar hefur viss vandi legið. Í reynd er þessi lagaskylda ekki alltaf uppfyllt. Nýlegt dæmi frá Hornafirði, þar sem eldur kom upp í hjúkrunarheimili í byggingu, varpar skýru ljósi á stöðuna. Þar kom fram að ríkisbyggingar eru almennt ekki tryggðar fyrr en þær eru tilbúnar, sem stangast í raun á við gildandi lög. Þetta sýnir að ekki bara einstaklingar, heldur líka opinberir aðilar, geta misst sjónar á ábyrgðinni. Eitt stærsta vandamálið er einfaldlega skortur á eftirliti. Þegar enginn fylgist með myndast auðveldlega gat í tryggingar verndinni einmitt á þeim tíma þegar verðmætin eru hvað mest og áhættan raunveruleg. Á byggingartíma geta atvik eins og eldur, vatnstjón, óveður eða innbrot haft gríðarlegar afleiðingar. Ábyrgðin er þó skýr: hún liggur hjá eigendum mannvirkja. Samt gera margir ráð fyrir að verktakar sjái um tryggingamálin. Sá misskilningur getur reynst dýr. Þess vegna þarf að skerpa á fræðslu og samtali milli aðila, svo allir aðilar: eigendur, verktakar og undirverktakar viti nákvæmlega hver ber ábyrgð á hverju. Fjárfestar og lánastofnanir gegna líka lykilhlutverki. Þegar verkefni er fjármagnað er oft krafist brunatryggingar sem skilyrðis fyrir fjármögnun. Stuðlar það að auknu öryggi. En það dugar skammt ef önnur áhætta er ótryggð. Hér kemur ný lausn á Íslandi inn í myndina: Verktakatrygging. Hún er hugsuð sem viðbót við brunatryggingu og brúar bilið þar sem hefðbundnar tryggingar ná ekki til. Hún getur til dæmis bætt tjón á byggingarefnum, rúðubroti, innbrotum eða veðurtjóni. Allt það sem í getur falist raunveruleg áhætta á virkum byggingarsvæðum. Þar liggja oft mikil verðmæti, ekki síst í ónotuðum efnum sem annars væru ótryggð.. Með því að sameina lögboðna brunatryggingu og verktakatryggingu er hægt að loka þessu gati og tryggja samfellda vernd frá fyrsta degi framkvæmda til þess síðasta. Þetta fyrirkomulag er vel þekkt erlendis, þar sem tryggingar fyrir byggingarframkvæmdir eru víðtækari og taka jafnvel til náttúruhamfara. Þörfin hefur lengi verið til staðar hér á landi bæði fyrir smærri verkefni og mikla uppbyggingu á ákveðnum svæðum. Áhættan er nefnilega til staðar á öllum stigum. Og eitt er víst: tjón bíður ekki eftir hentugum tímapunkti. Það getur orðið í upphafi framkvæmda eða þegar verkið er vel á veg komið, jafnvel rétt fyrir afhendingu. Þess vegna þarf tryggingaverndin að vera til staðar allan tímann. Með því að stoppa í gatið getum við tryggt að byggingarframkvæmdir á Íslandi standi á traustari grunni, ekki bara tæknilega, heldur líka fjárhagslega þegar á reynir. Höfundur greinar er forstöðumaður Fyrirtækjaþjónustu hjá Sjóvá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar