Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir, Guðmundur Þ. Guðmundsson, Rakel Garðardóttir, Rán Flygenring og Stefán Jón Hafstein skrifa 22. apríl 2026 15:30 „Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Þessi fleygu orð hafa sjaldan átt betur við en einmitt nú. Sumardaginn fyrsta göngum við saman í Grænu göngunni – ekki bara til að fagna vorinu, heldur til að krefjast þess að stjórnvöld sýni náttúru og auðlindum landsins þá varúð og virðingu sem þau eiga skilið. Samsta ða fyrir framtíðina Umhverfis- og náttúruverndarsamtök um allt land, einstaklingar og hópar hafa sameinað raddir sínar. Skilaboðin eru skýr: Óspillt náttúra og heilnæmt loftslag eru undirstöður framtíðar okkar. Við verðum öll að bregðast við kallinu, sporna við náttúrutapi og fylgja eftir settum markmiðum í loftslagsmálum af fullri einurð. Stefnumið okkar eru skýr: Stjórnvöld virði fyrst og fremst náttúrugæði, líffræðilegan fjölbreytileika á hafi og landi og standi við fyrirheit um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Vinnum gegn rányrkju: Við viljum að auðlindir séu nýttar af hófsemd og með almannaheill að leiðarljósi. Alvöru aðgerðir: Að hraða orkuskiptum til hagsbóta fyrir okkur öll, stuðla að sjálfbærum atvinnuháttum og hvetja til samstarfs heimila, skóla og fyrirtækja til að vinna að sameiginlegu markmiði um fagurt og heilnæmt Ísland. Við minnum á að enn eigum við ekki Hálendisþjóðgarð. Við viljum að stærstu víðerni Evrópu verði vernduð hið fyrsta. Mætum öll! Náttúran á ekki alltaf rödd við samningaborðið, en hún á okkur. Með því að fjölmenna í Grænu gönguna sýnum við að almenningur krefst samráðs og virðingar fyrir markmiðum Sameinuðu þjóðanna um verndun hafs og lands sem Íslendingar hafa undirgengist. Látum sumardaginn fyrsta verða upphafið að nýju tímabili verndar og virðingar. Hittumst í Grænu göngunni á Arnarhóli kl. 13.30 sumardaginn fyrsta! Fyrir náttúruna, fyrir okkur og fyrir framtíðina! Undirrituð: Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu Guðmundur Þ. Guðmundsson, handboltaþjálfari Rakel Garðardóttir, framleiðandi Rán Flygenring, listamaður Stefán Jón Hafstein, formaður Aldins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elva Rakel Jónsdóttir Rán Flygenring Stefán Jón Hafstein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Skoðun Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Sjá meira
„Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Þessi fleygu orð hafa sjaldan átt betur við en einmitt nú. Sumardaginn fyrsta göngum við saman í Grænu göngunni – ekki bara til að fagna vorinu, heldur til að krefjast þess að stjórnvöld sýni náttúru og auðlindum landsins þá varúð og virðingu sem þau eiga skilið. Samsta ða fyrir framtíðina Umhverfis- og náttúruverndarsamtök um allt land, einstaklingar og hópar hafa sameinað raddir sínar. Skilaboðin eru skýr: Óspillt náttúra og heilnæmt loftslag eru undirstöður framtíðar okkar. Við verðum öll að bregðast við kallinu, sporna við náttúrutapi og fylgja eftir settum markmiðum í loftslagsmálum af fullri einurð. Stefnumið okkar eru skýr: Stjórnvöld virði fyrst og fremst náttúrugæði, líffræðilegan fjölbreytileika á hafi og landi og standi við fyrirheit um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Vinnum gegn rányrkju: Við viljum að auðlindir séu nýttar af hófsemd og með almannaheill að leiðarljósi. Alvöru aðgerðir: Að hraða orkuskiptum til hagsbóta fyrir okkur öll, stuðla að sjálfbærum atvinnuháttum og hvetja til samstarfs heimila, skóla og fyrirtækja til að vinna að sameiginlegu markmiði um fagurt og heilnæmt Ísland. Við minnum á að enn eigum við ekki Hálendisþjóðgarð. Við viljum að stærstu víðerni Evrópu verði vernduð hið fyrsta. Mætum öll! Náttúran á ekki alltaf rödd við samningaborðið, en hún á okkur. Með því að fjölmenna í Grænu gönguna sýnum við að almenningur krefst samráðs og virðingar fyrir markmiðum Sameinuðu þjóðanna um verndun hafs og lands sem Íslendingar hafa undirgengist. Látum sumardaginn fyrsta verða upphafið að nýju tímabili verndar og virðingar. Hittumst í Grænu göngunni á Arnarhóli kl. 13.30 sumardaginn fyrsta! Fyrir náttúruna, fyrir okkur og fyrir framtíðina! Undirrituð: Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu Guðmundur Þ. Guðmundsson, handboltaþjálfari Rakel Garðardóttir, framleiðandi Rán Flygenring, listamaður Stefán Jón Hafstein, formaður Aldins.
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar