Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar 23. apríl 2026 11:32 Forsætisráðherra var nýlega í viðtali í ríkissjónvarpinu að ræða um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Nokkrum dögum áður hafði fjármálaráð birt skýrslu sína, en það hefur það hlutverk að veita hlutlægt álit á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Athygli vakti að fréttamenn ríkisútvarpsins sáu enga ástæðu til þess að spyrja forsætisráðherra út í niðurstöður skýrslunnar sem er sú fyrsta sem birtist eftir heilt starfsár nýrrar ríkisstjórnar. Í gegnum tíðina hefur fjármálaráð gagnrýnt eitt og annað í áætlunum og stefnumótun fyrri ríkisstjórna. Þessari gagnrýni hefur eðlilega verið fylgt eftir af hálfu fjölmiðlamanna þ.m.t. fréttamanna ríkisútvarpsins með ítarlegri umfjöllun. Sú gagnrýni sem fjármálaráð hefur sett fram á efnahagsstjórn núverandi ríkisstjórnar er einstök í sinni röð og óhætt að fullyrða að aldrei hafi komið fram jafn alvarleg gagnrýni á efnahagsstefnu stjórnvalda. Mikilvægi fjármálaráðs felst ekki síst í því að ráðið fer yfir ýmsar forsendur stjórnvalda og hversu áreiðanlegar þær eru. Þetta ætti að vekja sérstaka athygli þeirra fjölmiðla sem telja mikilvægt að berjast gegn upplýsingaóreiðu. Meðal þess sem fjármálaráð bendir á er að upplýsingar úr skattframtölum síðustu 10 ára bendi ekki til þess að nein kjaragliðnun hafi átt sér stað milli bótaþega og launamanna heldur þvert á móti hafi ráðstöfunartekjur bótaþega vaxið hraðar en tekjur vinnandi fólks. Fjármálaráð varar alvarlega við vísitölutengingu bóta og bendir á að bætur geti vaxið hraðar en tekjur launafólks. Þetta sé ekki áhætta heldur beinlínis „fyrirsjáanleg niðurstaða af hönnun kerfisins“. Verkalýðshreyfingin hefur haft uppi svipaðar áhyggjur, sem og Seðlabankinn. Raunar hafa allir hagfræðingar landsins sem hafa tjáð sig um málið varað sérstaklega við því, að frátöldum tveimur núverandi ráðherrum og einum fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar. Sú stefna stjórnvalda að það sé hagstæðra að vera á bótum en að fara út á vinnumarkaðinn er veruleiki sem ekkert samfélag ræður við til lengri tíma og leiðir að lokum til lakari lífskjara sem bitnar á mest á þeim sem eru veikastir fyrir. Allt fór þetta framhjá fréttamönnum ríkisútvarpsins sem voru mjög duglegir að fjalla um skýrslu fjármálaráðs áður en núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Það er því eins gott að ríkisútvarpið setji fyrirvara undir hverja einustu frétt á vefnum að það sé óháð hagsmunum. Annars myndum við engan veginn átta okkur á því. Höfundur er varaþingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Brynjar Níelsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar