Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir skrifar 24. apríl 2026 10:30 Nýverið fullyrtu oddvitar Vinstri Grænna og Viðreisnar í Kópavogi að tillaga Miðflokksins um að efla heimgreiðslur séu aðför að kvennréttindum. Að segja að heimgreiðslur þvingi konur til að vera heima gengur út á það að stjórnvöld viti betur en konur sjálfar hvað sé þeim fyrir bestu og er það forræðishyggja í sinni tærustu mynd. Við í Miðflokknum í Kópavogi treystum konum til að taka ákvarðanir sem er þeim og þeirra fjölskyldum fyrir bestu. Fjölskyldur eiga ekki að vera neyddar til að laga sig að kerfi sem hentar þeim ekki. Hlutverk hins opinbera er að styðja við einstaklinga og fjölskyldur, ekki að móta líf þeirra eftir fyrirfram ákveðnu formi. Í dag eru heimgreiðslur í Kópavogi 115.810 kr. á mánuði og hefjast ekki fyrr en við 15 mánaða aldur barns. Á sama tíma er fæðingarorlof aðeins 12 mánuðir samtals. Þetta þýðir að kerfið skilur foreldra eftir í tómarúmi í allt að þrjá mánuði, án stuðnings eða úrræða. Það þarf að brúa þetta bil og bjóða upp á heimgreiðslur við 12 mánaða aldur barns. Einnig þarf að hækka heimgreiðslur þannig þær séu raunhæfur kostur fyrir fjölskyldur til að brúa þetta bil. Við í Miðflokknum leggjum til að sú upphæð verði helmingur þess sem bærinn greiðir með leikskólaplássi eða um 250.000 kr. Við viljum tryggja að foreldrar hafi raunverulegt frelsi til að velja þá leið sem hentar þeirra fjölskyldu. Í fréttum nú nýlega var sagt frá því að búið væri að innrita öll 12 mánaða börn í leikskóla í Kópavogi sem fædd eru í ágúst eða fyrr, sem eru vissulega gleðileg tíðindi. Eftir sitja hinsvegar börn sem fædd eru eftir ágústmánuð sem þarf að brúa bilið hjá. Einnig eru ekki allir sem vilja endilega fara með svo ung börn í vistun á leikskóla og telur Miðflokkurinn að það ætti að standa foreldrum til boða að geta valið heimgreiðslur ef það henti þeim betur upp að 24 mánaða aldri. Með þessu er einnig möguleiki á að minnka álag á leikskólana. Að lokum snýst þetta ekki um kerfi heldur um fólk. Við viljum að stefnumótun sveitarfélaga taki mið af raunverulegu lífi fólk en ekki hugmyndafræði. Annaðhvort höldum við áfram að byggja kerfi sem þrýstir öllum í sama mót eða við veljum að treysta foreldrum og gefum þeim raunverulegt frelsi. Við í Miðflokknum í Kópavogi veljum frelsi. Við viljum samfélag þar sem fjölskyldurnar sjálfar fá að ráða og þar sem stuðningur fylgir þörfum fólks en ekki öfugt. Þannig byggjum við sterkara samfélag. Höfundur er móðir og skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar