Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson, Maria Araceli og Þorsteinn Hjartarson skrifa 25. apríl 2026 10:30 Í Hveragerði eiga íþróttir að vera forgangsmál. Þær eru ekki munaður heldur nauðsyn — lykill að betri lýðheilsu, sterkari félagslegum tengslum og öflugra samfélagi. Fjárfesting í íþróttum er fjárfesting í fólkinu okkar og skilar sér margfalt til baka. Undanfarin ár hafa einkennst af ágreiningi um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði. Slíkt getur tafið framfarir og dregið úr krafti íþróttastarfsins. Nú er tími til að snúa vörn í sókn. Við þurfum skýra sýn, markvissar ákvarðanir og raunverulegt samstarf — ekki fleiri deilur. S-listinn vill taka forystu í því að byggja upp traust og öflugt samstarf við íþróttahreyfinguna. Við ætlum að vinna náið með félögum á borð við Íþróttafélagið Hamar, Hestamannafélagið Ljúf, Félag eldri borgara og Golfklúbb Hveragerðis og tryggja að rödd þeirra heyrist við ákvarðanatöku. Jafnframt munum við styrkja tengsl íþrótta við skóla, velferðar- og heilbrigðisþjónustu svo allir vinni saman að því markmiði að tryggja betri lífsgæði íbúa. Við leggjum áherslu á fjölbreytt íþróttaframboð. Allir eiga að finna sér farveg — hvort sem það er í keppni, hreyfingu sér til heilsubótar eða útivist. Þátttaka í íþróttum á vera réttur allra. Börnin í fyrsta sæti – forvarnir sem virka Börn og ungmenni eru í forgangi. Íþróttir eiga að vera öruggt rými þar sem þau fá að vaxa, mynda tengsl og byggja upp sjálfstraust. Við ætlum að tryggja að öll börn, óháð uppruna eða aðstæðum, hafi raunveruleg tækifæri til þátttöku. Íþróttafélög eru lykilaðilar í forvörnum og þess vegna viljum við efla hlutverk þeirra innan velferðarkerfisins. Þjálfarar ættu til að mynda að fá markvissa fræðslu um farsæld barna, samskipti og áhættuhegðun. Þannig nýtum við íþróttir kerfisbundið til að byggja upp heilbrigða, sterka og samheldna kynslóð. Sameiginlegt yfirlit yfir íþrótta- og tómstundastarf Upplýsingar um allt sem er í boði eiga að vera skýrar og aðgengilegar. Því þarf alltaf að huga vel að kynningu á íþróttastarfi með það að markmiði að allir geti auðveldlega séð hvað er í boði hverju sinni. Þátttaka eykst oftast þegar upplýsingar eru sýnilegar og einfaldar. Í dag er engin heildaryfirsýn í Hveragerði sem er bagalegt. Mörg bæjarfélög, m.a. Akureyri og Hafnarfjörður, eru einmitt með sameiginlegt yfirlit yfir íþrótta- og tómstundastarf þar sem samvinna sveitarfélags og félaga er mjög sýnileg. Það gerir til að mynda nýjum íbúum sérstaklega auðvelt að sjá hvað er í boði og hvernig skráningum er háttað. Skýr stefna – raunverulegur árangur Framtíð íþróttamála í Hveragerði snýst um aðgerðir, ekki orð. S-listinn ætlar að: flýta uppbyggingu íþróttamannvirkja efla samstarf bæjaryfirvalda og íþróttafélaga efla kynningarstarf og tryggja jöfn tækifæri til þátttöku og setja heilsu og vellíðan íbúa í forgang Þannig byggjum við upp sterkara samfélag — samfélag þar sem íþróttir eru ekki aukaatriði, heldur hornsteinn góðra lífsgæða. Höfundar er frambjóðendur á S-listanum í Hveragerði. Guðmundur Benóný Baldvinsson er í 4. sæti Maria Araceli er í 3. sæti Þorsteinn Hjartarson er í 2. sæti Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar