Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2026 10:02 Callum McFarlane stýrir Chelsea í síðustu leikjum tímabilsins. getty/Visionhaus Calum McFarlane, bráðabirgðastjóri Chelsea, segir ótækt að byrjunarliði Lundúnaliðsins sé lekið hvað eftir annað og vill koma í veg fyrir að það gerist aftur.
Fyrir leikinn gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni á þriðjudaginn birti rakari Marcs Cucurella upplýsingar á X um að Joao Pedro og Cole Palmer yrðu fjarri góðu gamni í leiknum. Chelsea tapaði leiknum gegn Brighton, 3-0, og eftir hann var Liam Rosenior rekinn eftir aðeins rúmlega hundrað daga í starfi. Í stuttri stjóratíð Roseniors gerðist það nokkrum sinnum að byrjunarliði Chelsea var lekið, meðal annars fyrir báða leikina gegn Paris Saint-Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. McFarlane, sem stýrir Chelsea út tímabilið, vonast til að búið sé að skrúfa fyrir þennan leka. „Það hefur verið tekið á þessu og var gert áður. Þetta er eitthvað sem við skoðuðum og verður að hætta. Við ræddum við þá um mikilvægi þess og að þetta endurtaki sig ekki,“ sagði McFarlane. Chelsea mætir Leeds United í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley í dag. Sigurvegarinn mætir Manchester City í úrslitaleiknum 16. maí næstkomandi. Chelsea hefur tapað fimm leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora. Liðið er í 8. sæti og það er orðið langsótt að það komist í Meistaradeildina á næsta tímabili. Leikur Chelsea og Leeds hefst klukkan 14:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Golf Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Sjá meira