Loftslagsmál sem lýðræðislegt verkefni Ingrid Kuhlman skrifar 28. apríl 2026 08:15 Loftslagsmál eru oft sett fram sem tæknilegt eða vísindalegt viðfangsefni sem sérfræðingar eigi að leysa. Þekking skiptir vissulega miklu máli. En loftslagsmál snúast ekki aðeins um tölur, losunarkúrfur og tæknilausnir heldur um fólk og hvernig við tökum sameiginlegar ákvarðanir um framtíðina. Í lýðræðissamfélagi nægir ekki að fólk sé upplýst. Það þarf að fá að móta. Þátttaka er forsenda árangurs Loftslagsaðgerðir snerta daglegt líf fólks á margvíslegan hátt: samgöngur, húsnæði, orkunotkun, matvæli og skipulag samfélagsins. Þegar ákvarðanir um slík mál eru teknar án raunverulegrar aðkomu skapast tortryggni og mótstaða. Það grefur ekki aðeins undan trausti heldur einnig undan markmiðum aðgerðanna sjálfra. Þátttaka snýst ekki um samstöðu heldur um að fólk upplifi að sjónarmið þess skipti máli og að það hafi áhrif. Þegar fólk fær rými til að skilja, spyrja og ræða aukast líkur á að lausnir njóti stuðnings, jafnvel þótt þær krefjist breytinga. Fræðsla ein og sér dugar ekki Í loftslagsumræðunni er mikil áhersla lögð á fræðslu: að fólk viti meira og breyti hegðun sinni, til dæmis með því að hjóla meira, borða plöntumiðað fæði, draga úr orkunotkun og velja endingarmeiri vörur. Fræðsla skiptir máli en hún dugar skammt ef fólk upplifir sig einungis sem móttakanda skilaboða. Slík nálgun gengur út frá því að vandinn sé fyrst og fremst skortur á upplýsingum, fremur en skortur á lýðræðislegri aðkomu. Þegar fólk er upplýst en ekki virkjað í samtal myndast gjá milli stefnumótunar og daglegs lífs. Loftslagsmál verða þá auðveldlega að kröfu ofan frá fremur en sameiginlegu verkefni. Sú tilfinning getur orðið frjór jarðvegur fyrir andóf og pólitískt bakslag. Dæmi síðustu ára í Evrópu sýna skýrt að loftslagsaðgerðir sem skortir breitt félagslegt umboð geta orðið pólitískt eldfimt mál og jafnvel snúist upp í bakslag gegn markmiðunum sjálfum. Í Hollandi leiddu köfnunarefnisaðgerðir til víðtækra mótmæla bænda og pólitískrar uppstokkunar. Í Þýskalandi hefur bakslag í umræðu um orkuskipti og hækkandi orkukostnað farið saman við aukið fylgi Alternative für Deutschland (AfD), sem gagnrýnir loftslagsaðgerðir og kolefnisgjöld. Það er ástæða til að spyrja hvort Ísland sé undanþegið slíkri þróun. Samráð er styrkur Stundum er litið á samráð sem hægagang sem dragi úr metnaði. Raunin er oft önnur. Vel útfært samráð getur bætt gæði ákvarðana, dregið úr átökum og minnkað líkur á harðri andstöðu síðar. Loftslagsmál krefjast breytinga sem ná yfir mörg kjörtímabil. Slíkar breytingar verða ekki byggðar á þröngu pólitísku umboði heldur á breiðri sátt um meginmarkmið, jafnvel þótt deilt sé um leiðir. Uppbygging Borgarlínu sýnir þetta vel. Þar hefur umræðan sýnt að þegar fólk upplifir skort á aðkomu eða skýrum svörum um áhrif á eigið líf eykst mótstaða, jafnvel gagnvart markmiðum sem margir styðja í grunninn. Samráð snýst ekki um að tefja ákvarðanir heldur um að skapa traust og félagslegt umboð sem gerir breytingar varanlegar. Félagslegt umboð skiptir máli Án félagslegs umboðs verða loftslagsaðgerðir brothættar og auðvelt skotmark þegar pólitískur eða efnahagslegur mótvindur blæs. Þá er hætt við að næsta pólitíska sveifla snúi við þeim árangri sem náðst hefur. Félagslegt umboð byggist ekki á fullkominni samstöðu heldur á sanngirni, gagnsæi og trausti. Að byrðum og ávinningi sé dreift með réttlátum hætti og ákvarðanir teknar á opnum forsendum. Loftslagsmál sem sameiginlegt verkefni Loftslagsmál verða ekki leyst með því að færa ábyrgðina alfarið til sérfræðinga, stjórnvalda eða einstaklinga. Þau krefjast samspils allra þessara þátta og umfram allt virks lýðræðis. Ein leið væri að kalla saman þjóðfund um loftslagsmál. Með slembivali þátttakenda og skipulögðu samtali mætti tryggja að raddir ólíkra hópa heyrðust, ekki aðeins þeirra sem þegar hafa greiðan aðgang að opinberri umræðu. Þjóðfundur leysir ekki tæknilegar spurningar. En hann getur lagt grunn að félagslegu umboði með því að gera almenning að þátttakendum í stefnumótun, ekki aðeins áheyrendum. Þegar við nálgumst loftslagsmál sem lýðræðislegt verkefni breytist tónninn. Þá snúast þau síður um fyrirmæli og meira um samtal. Í slíku samtali skapast ekki aðeins betri aðgerðir heldur sterkara samfélag og það traust sem þarf til að takast á við loftslagsvandann til lengri tíma. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson Skoðun Skoðun Skoðun Getur maður dansað sig út úr depurð? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Vinnuvernd er líka sjálfsvígsforvörn Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Á allt Ísland heima á höfuðborgarsvæðinu? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Reykjanesundrið - næsti kafli Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekkert að spila um Sigurður Hallur Jónsson skrifar Skoðun HMS vill dýrari byggingar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar að náttúruvernd fer úr tísku Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þið eruð trömpistar ... sagði orkuráðherra Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Konur fjárfestum! Iða Brá Benediktsdóttir skrifar Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun 48 manna stjórn – er þess virkilega þörf? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Má segja að börn á Íslandi hafi það gott? Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Þau sem eftir sitja Auður Erla Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35 borgar ekki reikningana Elliði Vignisson skrifar Skoðun Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Von er ekki aðgerð Hermína Gunnþórsdóttir,Sigrún Helga Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Við erum náttúran – náttúran er við Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Frjósemisvarðveisla; Jafnt aðgengi að framtíðinni Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Byggjum upp netöryggisgetu og fögnum áfangasigrum Hrannar Ásgrímsson skrifar Skoðun Menntun þarf ekki að þýða tekjutap Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Kostir og gallar Schengen Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun 20 kíló af þjóðarskömm Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvað breyttist þegar þjóðin sagði nei? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnun gervigreindar og öryggi Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun vissi af gloppunni en gerði ekkert Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Reikningurinn sem svefninn getur ekki borgað Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Er þetta allt sama tóbakið? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Danski bærinn Akureyri Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað gerist þegar ótti er endurtekinn nógu oft til að fordómar fari að líta út eins og heilbrigð skynsemi? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Kílómetragjald á umönnun Alma Ýr Ingólfsdóttir,Guðmundur Ármann Pétursson,Stefanía Hulda Marteinsdóttir,Vigdís Gunnarsdóttir skrifar