Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa Hveragerðis Lárus Jónsson skrifar 27. apríl 2026 10:16 Margir þekkja mig úr heimi íþróttanna þar sem ég hef starfað síðastliðin misseri. Færri vita að ég er með mastersgráðu í alþjóðasamskiptum frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, þar sem áhersla á opinbera stjórnsýslu leggur grunninn að skilningi mínum á stjórnkerfum. Ég hef því leiftrandi áhuga á stjórnsýslu sveitarfélagsins og brenn fyrir að halda áfram þeirri vegferð að efla hana og styrkja. Öflug, gagnsæ og skilvirk stjórnsýsla sem tekur mið af þörfum allra íbúa bæjarins er lykilatriði í gæðasamfélagi. Það er mikilvægt að halda þeirri vegferð áfram sem hafin var fyrir fjórum árum. Á síðustu árum hefur orðið mikilvæg breyting á stjórnsýslu Hveragerðisbæjar sem einkennist af aukinni fagmennsku, skýrari verkaskiptingu og markvissari nálgun við ákvarðanatöku. Þetta eru breytingar sem skipta miklu máli fyrir bæjarbúa þó að þær fari ekki alltaf hátt í umræðunni. Ein af lykilbreytingunum er sú að ákvarðanataka dreifist nú mun betur á fagleg svið þar sem sviðstjórar bera ábyrgð á sínum málaflokkum. Nýtt skipurit bæjarins endurspeglar þessa sérhæfingu með fjórum öflugum stoðum sem heyra beint undir bæjarstjóra: Mennta-, menningar- og lýðheilsusvið: Þetta svið heldur utan um okkar mikilvægasta auð: börnin og vellíðan íbúa. Undir það heyra m.a. skólamál, íþrótta- og tómstundamál, lýðheilsumál og menningarstofnanir. Velferðarsvið: Svið sem tryggir félagslegt öryggi og stuðning. Það sinnir málefnum aldraðra og fatlaðs fólks, barnavernd og ráðgjöf. Tækni- og umhverfissvið: Svið sem stýrir vextinum og hvernig við byggjum upp bæinn okkar. Það sér um veitur, mannvirki, skipulags- og umhverfismál. Stjórnsýslusvið: Svið sem heldur utan um fjármál, stafræna þróun, þjónustuver og markaðsmál. Þessi nálgun sem byggir á dreifðri ábyrgðarstýringu er grundvöllur nútímalegrar stjórnsýslu. Hún byggir á því að ákvarðanir séu teknar nær verkefnunum sjálfum, af fólki sem hefur þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Slík stjórnsýsla kallar jafnframt á sterk samskipti og góða samvinnu milli sviða. Það er ánægjulegt að segja frá því að markvisst hefur verið unnið að því að efla slíka samvinnu á kjörtímabilinu með það að markmiði að bæta þjónustu við íbúa. Á sama tíma er mikilvægt að undirstrika hlutverk bæjarstjórans. Hann gegnir lykilhlutverki sem framkvæmdastjóri bæjarins og leiðir saman öflugan hóp fagfólks. Það er einmitt þetta samspil, öflug svið og skýr verkstjórn, sem tryggir heildstæða og skilvirka stjórnsýslu. Þetta fyrirkomulag hefur þegar sýnt gildi sitt. Með því að færa fræðslu- og velferðarþjónustu úr byggðasamlagi aftur heim í bæinn hefur tekist að bæta þjónustu verulega. Hún er nú nær íbúum, fagaðilar taka betur mið af þörfum samfélagsins og brugðist er hraðar við. Slíkar breytingar gerast ekki af sjálfu sér. Þær krefjast sýnar, reynslu og þrautseigju. Það er mín skoðun að sú vegferð sem farin hefur verið undanfarin ár sé rétt og að mikilvægt sé að halda henni áfram. Samfella í stjórnsýslu skiptir sköpum ef við ætlum að festa umbætur í sessi og byggja áfram á þeim árangri sem náðst hefur. Ég hef verið spurður hvort ég hyggist sjálfur taka að mér hlutverk bæjarstjóra. Svarið er einfalt: Ég treysti engum betur en Pétri G. Markan til að leiða þann faglega rekstur áfram. Mitt hlutverk sem oddviti er að tryggja pólitíska forystu og framtíðarsýn, á meðan bæjarstjóri leiðir öflugan hóp fagfólks. Fyrir mér snýst góð stjórnsýsla líka um samskipti við íbúa. Á kjörtímabilinu hafa raddir bæjarbúa fengið aukið vægi, meðal annars með reglulegum upplýsingafundum bæjarstjóra „pælt í bænum“ og virkari notendaráðum svo sem nýstofnuðu ungmennaráði, öflugu öldungaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks. Þetta er þróun sem ég vil halda áfram að efla. Virkt íbúalýðræði styrkir ákvarðanatöku og gerir hana betri. Jafnframt er mikilvægt að þeir sem starfa í nefndum á vegum bæjarins fái faglegan stuðning til að sinna sínu hlutverki vel. Skýr hlutverk, gott samstarf og traust umgjörð eru lykilatriði í því. Grunnþjónustan á alltaf að vera í forgrunni. Til þess að svo megi vera þurfum við að halda áfram að byggja upp faglega, skilvirka og samhæfða stjórnsýslu sem þjónar íbúum á réttum tíma og á réttan hátt. Þetta er verkefnið sem er fram undan og ég tel mikilvægt að við höldum áfram á þeirri braut sem hefur þegar sýnt sig að virkar. Höfundur er oddviti Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar