Öryggi og gæði í leikskólum – ábyrgð okkar Gunnþórunn Valsdóttir skrifar 27. apríl 2026 10:45 Leikskólinn er fyrsta skólastigið samkvæmt Aðalnámskrá. Þar taka börn sín fyrstu skref í námi. Því er afar mikilvægt að þau upplifi þar öryggi, vellíðan og umhyggju frá fyrsta degi. Leikskólinn er ekki aðeins staður þar sem börn dvelja hluta dags, heldur er hann grunnur að framtíð þeirra og þroska. Í leikskólum er unnið með yngstu kynslóðina – framtíðina sem mun svo halda áfram að byggja upp samfélagið. Því þarf starfsemin ávallt að vera í hæsta gæðaflokki. Börn þurfa að finna fyrir stöðugleika og öryggi og starfsumhverfið þarf að styðja við það markmið á hverjum degi. Reglum breytt Á undanförnum árum hafa mörg sveitarfélög endurskoðað reglur sínar varðandi svokölluð barngildi í leikskólum. Sveitarfélög á borð við Reykjavíkurborg, Kópavog, Garðabæ, Borgarbyggð, Ísafjörð og Hvalfjarðarsveit hafa tekið skref í þá átt að bæta hlutfall starfsfólks miðað við fjölda barna. Þessi þróun miðar að auknu öryggi, betri starfsaðstæðum og meiri gæðum í leikskólastarfi. Hækkum barngildin Akraneskaupstaður hefur hins vegar ekki fylgt þessari þróun eftir og því er brýnt að bregðast við. Í lögum um leikskóla er ekki kveðið á um nákvæmt hlutfall barna á hvern starfsmann. Þess í stað hafa mörg sveitarfélög stuðst við eldri reiknireglu þar sem hver starfsmaður sinnir átta barngildum. Yngri börn telja meira í þessum útreikningi og eldri börn telja minna. Á Akranesi telst barn á elstu deild til dæmis aðeins 0,8 barngildi, á meðan að sveitarfélögin sem nefnd eru hér fyrir ofan miða við eitt fullt barngildi fyrir hvert barn á sama aldri. Þessi munur hefur raunveruleg áhrif á mönnun deilda í leikskólum. Tökum nú dæmi, ef við erum með 25 börn á elstu deild hér í leikskólum Akraneskaupstaðar, er grunnstöðugildi aðeins 2,5 starfsmenn. Þetta þýðir að á ákveðnum tímum, til dæmis þegar starfsfólk fer í neysluhlé, getur einn starfsmaður setið eftir með allan barnahópinn. Slík staða er hvorki ásættanleg né örugg – hvorki fyrir börnin né starfsfólkið. Þetta dæmi segir okkur að með því að hækka t.d barngildi á elstu deild mætti tryggja að aldrei væru færri en þrír starfsmenn við störf á hverri deild. Slík breyting myndi auka öryggi, bæta starfsaðstæður og styrkja gæði leikskólastarfsins í heild. Tryggjum öryggi barna Að hækka barngildi um 0,2 á hverri deild er raunhæf og áhrifarík leið til að ná þessum markmiðum. Það er brýnt að tryggja að nægilega margar hendur séu til staðar til að sinna þeim fjölda barna sem eru í leikskólum hverju sinni. Öryggi barna á aldrei að vera háð tilviljunum eða skorti á mannskap. Börnin okkar – framtíðin – eiga skilið bestu mögulegu aðstæður. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að tryggja að svo sé. Höfundur er leikskólakennari og skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar