Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Þórarinn Þórarinsson skrifar 27. apríl 2026 10:34 Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkginarinnar í Kópavogi, tók ekki eftir neinu þegar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, reyndi að endurheimta orðið með því að pota í hann. Skjáskot „Ég upplifði þetta pot ekki sem mikla árás,“ segir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, sem tók ekki eftir því þegar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks, ýtti tvisvar við honum þegar þau tókust á um orðið í heitum umræðum á Sprengisandi í gær.
Ásdís og Jónas mættust í miklum sóknarham á Sprengisandi Bylgjunnar í gærmorgun og Vísir greindi frá því að pólitísku átökin hefðu nánast orðið líkamleg þegar Ásdís ýtti tvisvar við Jónasi þegar hann freistaðist til að ná af henni orðinu með frammígripi.„Það er oft tekist á í pólitík og þannig á það að vera. Ég upplifði þetta pot ekki sem mikla árás, tók raunar ekki eftir því í viðtalinu, og get fullvissað fólk um að ég er alveg ómeiddur,“ skrifaði Jónas á laufléttum nótum þegar hann deildi frétt Vísis á Facebook í morgun. Þótt Jónas slái meinlausu pólitísku potinu upp í grín mælir hann hikæaust og í fullri alvöru með því að með hlustun á viðtalið sem hann lýsir sem líflegum rökræðum hans og bæjarstjórans. Oddvitar flokkanna tveggja, sem mælast stærstir í Kópavogi, deildu um ársreikning bæjarins, velferðar- og leikskólamál en hasarinn náði hámarki þegar Ásdís sneri sér að því sem hún telur sitjandi meirihluta til tekna við rekstur bæjarins. Jónas gat ekki setið þegjandi undir þeirri ræðu og greip fram í fyrir henni þegar hann sagði Ásdísi segja ósatt. Henni var þá svo nóg boðið að hún reyndi að endurheimta orðið með því að pota í tvígang í handlegg Jónasar, sem að eigin sögn tók ekki eftir neinu.„Mér finnst þetta svo vondur ávani hjá Jónasi. Hann grípur alltaf fram í fyrir mér. Ég leyfi þér að tala, leyfð þú þá mér að tala,“ sagði hún og þáttastjórnandinn, Kristján Kristjánsson, benti Jónasi á að hann myndi fá tækifæri til að svara. Augnablikið umtalaða má sjá að neðan.
Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Sprengisandur Mest lesið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fleiri fréttir Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Sjá meira