Fjölbreytt ferðaþjónusta á víðsjárverðum tímum Inga Hlín Pálsdóttir skrifar 27. apríl 2026 13:32 Ferðaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið fjölbreyttari en nú. Erlendir jafnt sem innlendir ferðamenn eiga þess kost að kynnast heillandi ævintýraheimi því framboðið á afþreyingu og upplifun á svæðinu er gríðarlegt. Á einum degi á höfuðborgarsvæðinu er hægt að fara á hestbak, skoða hvali, láta líða úr sér á um tuttugu sund- og baðstöðum, horfa á eldfjallasýningu, ganga um íshelli, fara aftur í tímann og skoða nútímann á söfnum og borða á fjölbreyttum veitingastöðum frá morgni til kvölds. Á þessu ári tekst ferðaþjónustan einnig á við stórt verkefni á miðri háönn starfsins því almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vestanverðu landinu og höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst. Þetta verkefni krefst þess að ferðaþjónustan sé samhent því mikill fjöldi ferðamanna mun ætla sér að sjá almyrkvann og allir á sömu mínútunni. Víðsjárverðir tímar Samhliða upplifir ferðaþjónusta um allan heim við víðsjárverða tíma: stríð, hækkandi olíuverð, fækkun flugferða, veðrabreytingar, gervigreind og óstöðugleika. Á Íslandi hefur þessi óvissa meðal annars einnig birst í auknum álögum og skattahækkunum. Allt þetta hefur áhrif á þróun og alþjóðlega samkeppnishæfni. Það er nefnilega ekki sjálfgefið að Ísland og Reykjavík verði fyrir valinu hjá ferðamönnum og það vill alltof oft gleymast. Við sjáum því breytingar á ferðaþjónustunni. Þar er ekki lengur vöxtur eins og var hér á árum áður eða fyrir 10 árum síðan og líklega mun ferðamönnum fækka á þessu ári. Þetta mun hafa áhrif. Við megum aldrei sofna á verðinum í því að kynna áfangastaðinn. Við þurfum að kynna sérstöðu hans og segja sögur sem styrkja samkeppnishæfnina. Það getum við gert saman – margt smátt getur gert eitt stórt. En við eigum ekki síður að reyna að fá þá ferðamenn sem hingað koma til þess að gera meira og eyða meira og þannig hafa jákvæð áhrif á áframhaldandi þróun. Hittumst og aukum samstarfið Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stendur nú að HITTUMST í þriðja sinn þann 6. maí frá kl. 13.00-16.00 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Um 70 ferðaþjónustuaðilar af öllu höfuðborgarsvæðinu sem vinna með 140 vörumerki taka þátt í sýningunni sem er mesta þátttaka frá upphafi. Sýningin var fyrst haldin í apríl 2024 og þá mættu um 1000 gestir og um 50 sýnendur. Ferðasýningin er nú lykilviðburður í ferðaþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu. Við sem höfum áhuga á ferðaþjónustu og störfum í henni eigum að nýta þennan vettvang. Hittast og sjá hvað svæðið hefur upp á að bjóða en ekki síst auka tengsl og þekkingu innan svæðisins. Finnum leiðir til þess að segja sögurnar saman. Við eigum þannig að vinna saman að því að gera áfangastaðinn öflugri – saman sköpum við þann slagkraft sem við er þekkt fyrir. Þannig getum við haft áhrif í sívaxandi alþjóðlegri samkeppni og jákvæð áhrif á þróun ferðaþjónustunnar. Hittumst í maí! Höfundur er framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins/Visit Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Inga Hlín Pálsdóttir Ferðaþjónusta Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun