Körfubolti

Frank Booker fer yfir hnéskeljarbrotið: „Löppin bara hékk á eftir mér“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frank Booker ætlar sér að vera líflegur á hliðarlínunni út tímabilið hjá Val.
Frank Booker ætlar sér að vera líflegur á hliðarlínunni út tímabilið hjá Val. Vísir/sigurjón

„Þetta var bara óheppni. Það er bara ég Keyshawn [Woods] sem lendum saman og í fyrsta leiknum þá lenti ég líka í þessu en þá var ég í loftinu. Þannig að ég held að það hjálpaði með höggið sjálft,“ segir Frank Aron Booker í kvöldfréttum Sýnar en hann braut part úr hnénu í leik á sunnudagskvöldið. Frank verður eðli málsins samkvæmt ekki meira með Valsliðinu í úrslitakeppninni en Valur vann Grindavík 79-72 í undanúrslitaeinvíginu og er staðan í því einvígi 1-1.

„Þetta er bara óheppni. Ég hef farið hné í hné örugglega hundrað sinnum eða meira á mínum ferli en þetta hefur aldrei verið svona vont. Ég fann að það var eitthvað öðruvísi. Eins og þegar ég stóð upp og ég var að reyna bara að labba, löppin bara hékk á eftir mér. Þannig að þetta var bara allt öðruvísi,“ segir Frank sem á eftir að fara í nánari skoðanir með sérfræðingi.

„Það á eftir að fara yfir myndina til að tékka ef það eru einhverjar taugar eða einhverjar sinar slitnar. Það eru svona tvö, þrjú stykki í kringum hnéskelina sem eru bara þarna fljótandi í hnénu. Hann vill bara tékka á því og vera alveg viss um að það sé ekki neitt sem er að fara að skaða neinar taugar eða neitt þannig.“

Fyrir tveimur árum í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn varð Kristófer Acox fyrir því óláni að brjóta á sér hnéskelina í sama húsi, gegn sama liði og nánast á sama stað á gólfinu.

„Þetta er bara körfubolti og þetta eru íþróttir. Svona gerist og maður hugsar alltaf fyrst bara af hverju ég? en í gærkvöldi var ég bara að hugsa, af hverju ekki ég? Ég verð bara enn þá meira brjálaður á hliðarlínunni og við sjáum bara hækjurnar uppi í lofti einhvers staðar og þetta verður bara fjör,“ segir Frank sem verður í gifsi í 4-6 vikur en ætti að vera frá keppni í um sex mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×