Nýsköpun þrífst ekki í óvissu Ingunn Gunnarsdóttir skrifar 28. apríl 2026 09:12 Nýsköpun er lykillinn að því að leysa áskoranir nútímans og móta sjálfbæra framtíð. Án hennar stöndum við í stað, engar nýjar lausnir verða þróaðar og engin framþróun. Nýsköpun verður þó ekki til í tómarúmi. Hún kviknar þar sem fólk fær svigrúm til að prófa nýjar leiðir, læra af mistökum, hugsa frumlega og þróa lausnir sem ekki er hægt að sjá fyrir í upphafi. Fyrirsjáanlegt og traust starfsumhverfi er forsenda slíks svigrúms. Umræðan undanfarið hefur beinst að því hvort starfsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi sé nægilega skýrt og fyrirsjáanlegt. Fjölmörg fyrirtæki hafa lent í vandræðum með að sækja endurgreiðslur til Rannís vegna kostnaðar sem fylgir rannsóknum og þróun, þar á meðal Orka náttúrunnar, þar sem ég starfa. Samtök iðnaðarins hafa lýst áhyggjum af vaxandi óvissu, Íslenski sjávarklasinn hefur sagt stöðuna alvarlega fyrir sprotafyrirtæki og Bioeffect hefur stefnt Rannís vegna synjunar á framlengingu skattafrádráttar. Bent hefur verið á að fyrirtæki upplifi breytta og neikvæðari nálgun án þess að nokkrar breytingar hafi orðið á þeim reglum sem um starfsemina gilda. Þetta skiptir höfuðmáli. Fyrirtæki taka ákvarðanir um fjárfestingar í rannsóknum og þróun á þeirri forsendu að leikreglur séu skýrar og framkvæmd þeirra stöðug. Þegar óvissa vex dregur það ekki aðeins úr þrótti einstakra verkefna heldur sendir skilaboð út í allt vistkerfið; varasamt sé að treysta því að stuðningsumhverfið haldi. Skýr viðmið skipta máli Því er ekki haldið fram að allar umsóknir eigi sjálfkrafa að hljóta jákvæða afgreiðslu. Auðvitað þarf að gera kröfur og ráðstafa opinberu fé af ábyrgð. Það er engu að síður grundvallaratriði að fyrirtæki, fjárfestar og frumkvöðlar geti áttað sig á því hvaða verkefni njóti stuðnings og hvaða viðmið ráði för. Í nýrri atvinnustefnu Íslands er nýsköpun ein af meginstoðum þeirrar framtíðarsýnar sem þar er sett fram og talin drifkraftur verðmætasköpunar. Tengd aðgerðaáætlun felur í sér aðgerðir sem miða að því að bæta umgjörð rannsókna, tækniþróunar og nýsköpunar. Viðmið eiga að verða skýrari og fyrirsjáanleiki aukinn. Þessu ber að fagna en framkvæmd þarf að fylgja orðum. Það gengur ekki að lýsa því yfir að nýsköpun, tækniþróun og hugverk séu meðal mikilvægustu drifkrafta verðmætasköpunar á Íslandi en á sama tíma skapa óvissu um þann stuðning sem gerir slíka uppbyggingu mögulega. Sé markmiðið að bæta starfsumhverfi nýsköpunarfyrirtækja verður það að birtast í skýrum viðmiðum, samræmdri túlkun og fyrirsjáanlegri stjórnsýslu. Nýsköpun þarf traust í verki Orð eru til alls fyrst en hrökkva skammt ein saman. Það nægir ekki að tala fallega um nýsköpun. Hana þarf að byggja upp innan fyrirtækja, með samstarfi þeirra og annarra svo sem háskóla og frumkvöðla, í umhverfi sem skilur að þróun nýrra lausna er sjaldnast bein lína frá hugmynd til afurðar. Hún er ferli sem felur í sér óvissu, tilraunir og lærdóm. Kerfið þarf að kunna að lesa í það. Orka náttúrunnar sér nýsköpun sem lykilþátt í að tryggja sjálfbæran rekstur, tæknilega forystu og framtíðarþrótt fyrirtækisins í þágu viðskiptavina, samfélags og umhverfis. Rannsóknir og nýsköpun eru megin drifkraftar í þróun starfseminnar og styðja við stefnu ON um ábyrga nýtingu auðlinda, sjálfbærni og virðisaukandi starfsemi til langs tíma. Nýsköpun er hluti þróunar og umbóta Við hjá Orku náttúrunnar höfum nýlega sett fram nýsköpunarstefnu sem byggist á þeirri einföldu en mikilvægu hugsun að nýsköpun sé ekki viðbót við hefðbundin störf, heldur eðlilegur hluti þróunar og umbóta í starfseminni. Markmiðið er að skapa skýran farveg fyrir hugmyndir, styðja við prófanir og þróun og efla menningu þar sem starfsfólkið fær svigrúm til að sjá tækifæri og fylgja þeim eftir. Einnig er lögð áhersla á að nýsköpun styðji tækniþróun, skapi verðmæti og nýjar tekjustoðir. Þar leikur Glóð, fyrirhuguð miðstöð nýsköpunar í Jarðhitagarði ON, lykilhlutverk. Glóð verður vettvangur fyrir þróun hugmynda, prófanir, þverfaglegt samstarf og nýjar lausnir. Þar fær nýsköpun raunverulegt rými til að vaxa, fyrir okkur og aðra sem vilja þróa lausnir á sviði orku, auðlindanýtingar og sjálfbærni. Það þarf að þora! Við stöndum á tímamótum. Ísland hefur á undanförnum árum getið af sér öflugt og fjölbreytt nýsköpunarsamfélag sem hefur nú þegar skilað samfélaginu miklum verðmætum. Eigi að halda áfram á þeirri braut þarf að gæta þess að stuðningsumhverfið haldi í við metnaðinn. Ekki má láta óskýrleika, ósamræmi eða of þrönga túlkun draga úr kraftinum á sama tíma og sagt er að framtíðin byggist á hugviti, tækni og nýjum lausnum. Nýsköpun þarf ekki lof í orði heldur traust í verki. Hún þarf skýr skilaboð, fyrirsjáanlegan farveg og umhverfi sem hvetur fólk og fyrirtæki til að þora að þróa, prófa og byggja upp. Verkefnið er skýrt: að tryggja að regluverk og framkvæmd hins opinbera styðji við nýsköpun með skýrum viðmiðum, samræmdri túlkun og fyrirsjáanleika. Gleðilega nýsköpunarviku (Iceland Innovation Week)! Höfundur er leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nýsköpun Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar