Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar 30. apríl 2026 07:32 Um daginn sá ég svona líka álitlega bifreið á bílasölu! Land Cruiser 100 sem var næstum jafn gamall og ég. Sem sérlegur áhugamaður um úr sér gengna jálka var ég vitaskuld hugfanginn. Mig hafði enda dreymt um ákkúrat svona drossíu í mörg ár. Verðið var sanngjarnt og þótt hann væri ekki fullkominn var hann bara skrambi góður. Allttént skömminni skárri en að fara ferða minna á tveimur jafnfljótum. En síðan fór ég að spá. Hvað ef hann lekur olíu? Kannski var fyrri eigandi að fúska með ryðbætingar? Hugsanlega er kaupsamningurinn bara alls ekki álitlegur? Mögulega vilja bílasalarnir féfletta mig og hýrudraga? Hvað ef fjármögnunin steypir mér í skuldafen? Síðan eru það blessaðar tryggingarnar! Þessar spurningar hvíldu þungt á mér. Raunar svo þungt að ég ákvað fyrir rest að vera ekkert að hafa fyrir því að mæta á staðinn til þess eins að verða fyrir vonbrigðum. Þarna var ég með draumabifreiðina í höndunum og í dauðafæri á að eignast hana. Fordómar mínir og bölspár urðu hins vegar til þess að ég lét einstakt tækifæri renna mér úr greipum. Ekki er þar með sagt að ég hefði endilega keypt blessaðan skrjóðinn, en að minnsta kosti hefði ég getað tekið upplýsta ákvörðun. Þann 29. ágúst næstkomandi fær þjóðin tækifæri til að taka skynsamlegri ákvörðun en ég. Við fáum einstakt tækifæri til að kjósa um að fara í viðræður - sjá samning. Síðan getum við tekið afstöðu til hans og sagt já eða nei í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild. Við erum að kjósa um viðræður - ekki aðild. . Það er ekki verið að selja landið, eins og segir í stórverki þjóðarskáldsins. Ekki stendur til að afsala fullveldinu til Brussel. Enginn hefur áhuga á að varpa sjálfstæðinu fyrir róða. Það er enda ekki þetta sem skal kjósa um, heldur fær fólkið í landinu einstakt tækifæri til að veita stjórnvöldum pólitískt umboð til að semja fyrir okkar hönd. Svo skoðum við samninginn og gerum upp hug okkar út frá því sem í honum stendur. Ég mun segja já 29. ágúst. Öðru vísi get ég ekki tekið upplýsta ákvörðun um aðild. “Nei” er glatað tækifæri. Tækifæri sem kemur ekki aftur. Höfundur situr í stjórn og málefnaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar