Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson skrifar 30. apríl 2026 07:01 Nú í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna hefur teiknast upp afgerandi munur á flokkunum sem bjóða fram. Annars vegar þeir sem bjóða fram til að leiða framfarir á höfuðborgarsvæðinu og þeir sem hafna þeim. Þessi gjá milli flokka hverfist ekki síst um afstöðu þeirra til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Ég las um helgina grein frá pólitískum keppinaut sem talaði um skort á getu og staðfestu. Í mínum hug er eltingaleikur við stefnu Miðflokksins í samgöngumálum einmitt birtingarmynd á fullkomnu getuleysi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Getuleysi til að standa með ákvörðunum sem samflokksfólk þeirra - í nágrannasveitarfélögunum og í ríkisstjórn - tók þátt í að samþykkja ekki einu sinni heldur tvisvar. Í fyrra skiptið árið 2019 þegar Samgöngusáttmálinn var samþykktur fyrst og svo aftur árið 2024 þegar endurskoðun sáttmálans hlaut náð og samþykki af sömu þverpólitísku flóru. Við í Samfylkingunni erum skýr í afstöðu okkar - samgöngusáttmálinn er lykilverkfæri í að koma nauðsynlegum samgönguframkvæmdum af stað hér í Reykjavík. Við höfum stutt hann frá upphafi og munum gera það áfram. Borgarlínan hefur fengið það hlutverk í umræðunni að vera brynvörn sáttmálans. Það er í mínum huga alls ekki slæmt. Við þurfum að tryggja metnaðarfulla uppbyggingu almenningssamgangna svo þær verði áreiðanlegur valkostur fyrir borgarbúa. Við í Samfylkingunni munum aldrei styðja eitthvað hálfkák eða málamiðlanir í þeim efnum á kostnað gæða. Borgarlínan hefur fyrir vikið orðið umdeild sem ég reyndar skil ekki alveg. Allir flokkar segjast styðja uppbyggingu öflugs hraðvagnakerfis með forgangsakreinum - sem er nákvæmlega það sem Borgarlínan er. Í mínum huga er það til vitnis um skort á kjark að geta ekki að notað orðið Borgarlína hreint út þegar þessi mál eru rædd. Við þurfum að bjóða upp á samgöngukerfi sem stenst nútímakröfur svo fleiri geti valið almenningssamgöngur og virka ferðamáta. Það er óumdeilt og um það snýst hin þverpólitíska sátt sem í samgöngusáttmálanum felst. En við þurfum líka að gera endurbætur á mikilvægum köflum gatnakerfisins til að bílaumferðin gangi betur. Það er óumdeilt og um það snýst samgöngusáttmálinn líka. Það þarf nefnilega að gera bæði - án annars mun hitt ekki virka. Án Borgarlínu og án fyrirhugaðra vegaumbóta verður samgöngukerfið áfram hálfklárað og ófullnægjandi. Með Borgarlínu greiðum við fyrir bílaumferð. Þess vegna skil ég ekki þá flokka sem tala um að endurskoða þurfi sáttmálann. Það myndi fela í sér miklar tafir og á meðan heldur umferðin áfram að þyngjast. Framkvæmdir við Borgarlínu og ýmsa vegkafla eru þegar hafnar og frekari framkvæmdir hafa verið boðnar út og á leið í framkvæmd nú í sumar. Á virkilega að setja þessa vinnu í algjört uppnám og frysta allt vegna þess að einhverjum er illa við orðið Borgarlína? Eðlilega eru uppi efasemdir um einstaka tæknilegar útfærslur og óöryggi gagnvart þeim breytingum sem í þeim felast. Það þarf að taka tillit til þeirra. En slíkt á ekki að vera grundvöllur til að fara í heildarendurskoðun á viðamiklum sáttmála um samgönguúrbætur fyrir allt höfuðborgarsvæðið – fjárfestingu fyrir allt að 300 milljarða næstu 15-20 árin. Þegar á reynir þarf nefnilega að sýna í senn bæði ábyrgð og staðfestu. Það er eina leiðin til framfara. Ég legg því að lokum fram grundvallar spurningu sem í mínum huga kjarnar komandi borgarstjórnarkosningar 16. maí. Styður þú Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins? Vilt þú framkvæmdir strax eða frekari tafir á nauðsynlegum umbótum samgöngukerfisins? Höfundur skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Birkir Ingibjartsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar