Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið Sindri Sverrisson skrifar 30. apríl 2026 07:01 Regína Sigurgeirsdóttir lætur sig helst ekki vanta þegar Tindastóll spilar í úrslitakeppninni. Hún ræddi við Andra Má Eggertsson fyrir leik í gær. Sýn Sport Það er vandfundin betri stemning á Íslandi en í Síkinu á Sauðárkóki í úrslitakeppninni í körfubolta. Á meðal fastagesta eru tvær vinkonur, gallharðir stuðningsmenn Tindastóls, sem ferðast að sunnan og heiðra minningu eiginmanns annarrar þeirra með því að mæta á leikina.
Andri Már Eggertsson ræddi við vinkonurnar, þær Regínu Sigurgeirsdóttur og Önnu Maríu Elíasdóttur, fyrir sigur Tindastóls gegn Stjörnunni í gærkvöld. Sigur sem hélt Tindastóli inni í úrslitakeppninni en Stjarnan er þó enn yfir, 2-1, í undanúrslitaeinvígi liðanna. Klippa: Andri ræddi við gallharða stuðningsmenn „Þetta er bara svo skemmtilegt. Við getum ekki látið okkur vanta,“ sagði Regína og ljóst að gleðin var við völd hjá þeim Önnu Maríu sem tóku virkan þátt í kúrekaþema stuðningsmanna Tindastóls og báru glæsilega, bleika kúrekahatta. Þó að gaman sé að mæta á leikina þá gera vinkonurnar það einnig af annarri ástæðu. Jón Hreinsson, eiginmaður Regínu, var nefnilega mikill stuðningsmaður Tindastóls en hann lést árið 2022 og vill Regína heiðra minningu mannsins síns með því að mæta á leiki: „Maðurinn minn heitinn er frá Króknum og Tindastóll komst í úrslitakeppnina árið sem hann lést. Þannig að við ætluðum aldeilis að leiða liðið okkar til sigurs, sem gekk hins vegar ekki, og þar af leiðandi urðum við að fara ár eftir ár, og þetta er bara orðið að fíkn,“ sagði Regína en Tindastóll varð svo Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögunni ári síðar, eða 2023. Þær Regína og Anna María vilja helst ekki missa af leik og ferðalagið norður er ekki síður skemmtilegt: „Það er alltaf besta stemningin. Okkur líður ógeðslega vel og erum rosalega spenntar að fara í þessar ferðir,“ sagði Anna María. „Það er brjáluð stemning hérna. Þetta er aðalstaðurinn,“ sagði Regína. Til þess að vinkonurnar geti mætt aftur á leik á Sauðárkróki á þessari leiktíð þarf Tindastóll núna að vinna Stjörnuna í Garðabæ á sunnudag. Takist það bíður liðanna oddaleikur í Síkinu næsta miðvikudagskvöld.
Bónus-deild karla Tindastóll Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Íslenski boltinn Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Sjá meira